Móskarðahnúkar
- Lýsing
Móskarðahnúkar ( 805 m.y.s) eru tignarleg fjöll austast í fjallabálknum sem við í daglegu tali köllum Esju. Þeir eru úr ljósu líparíti og líta því oftast út eins og sólin skíni á þá.
Að ganga á Móskarðahnúka er skemmtileg áskorun . Stígurinn upp fjallið er greinilegur og vel stikaður enda mikið farinn. Fjallið er nokkuð bratt og því mikilvægt að ganga rólega og fara ekki of hratt strax í byrjun.Gangan er opin öllum félögum í FÍ Ung en nauðsynlegt að skrá sig til að halda utan um þátttöku. Skráningu lýkur kl. 10:00 27. september.
- Brottför/Mæting
- Kl. 10:00 frá bílastæði við Móskarðahnúka
- Fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Gott að vita
- Áætlaður göngutími 3 - 4 klst.
- Hækkun um 660m
- Muna gott nesti
- Bílastæðið á Google Maps
FÍ Ung er fyrst og fremst hugsað fyrir fólk á aldrinum 18 – 25 ára. Skráning í FÍ Ung: https://www.fi.is/is/fi/ferdafelag-unga-folksins