Vífilsfell
- Lýsing
- Eitt tignarlegasta fjall í nágrenni Reykjavíkur er Vífilsfell (655 m) en margir líta á það sem nyrsta hnjúk Bláfjalla. Af fjallinu er mikið útsýni til allra átta. - Fyrst er farið upp skýran stíg upp bratta skriðu. Þegar komið er upp úr klettabelti er gengið eftir sléttum stalli og þar má sjá topp fjallsins sem er úr móbergi . Í efstu klettabeltunum eru kaðlar sem auðvelda uppgönguna og á tindinum er útsýnisskífa sem Ferðafélag Íslands setti upp. - Gangan er opin öllum félögum í FÍ Ung en nauðsynlegt að skrá sig til að halda utan um þátttöku. 
- Brottför/Mæting
- Kl. 10:00 frá bílastæði við námu í Vífilsfelli
- Fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
Gott að vita
- Áætlaður göngutími 3 klst.
- Hækkun um 450m
- Muna gott nesti
- Bílastæðið á Google Maps
FÍ Ung er fyrst og fremst hugsað fyrir fólk á aldrinum 18 – 25 ára. Skráning í FÍ Ung: https://www.fi.is/is/fi/ferdafelag-unga-folksins
 
								 
															



