Ferðafélag Íslands og Mosfellsbær - heilsueflandi samfélag, standa fyrir gönguferðum næstu þriðjudaga, þegar farið er í léttar fjallgöngur á fellin í Mosfellsbæ.
Þann 28 apríl nk. verður gengið á Æsustaðafell kl 17.30.
Staðsetning: Þegar ekið er upp Mosfellsdal má beygja út af inn á veg sem er merktur Hlaðgerðarkot. Fljótlega skal beygja aftur til hægri upp að smáhýsabyggðinni í Skammadal þar sem Reykvíkingar voru vanir að rækta kartöflur fyrr á tíð. Þar finnur ferðalangur fljótlega lítið bilastæði og þaðan liggur merkt og greinilega leið aflíðandi upp á Æsustaðafjall.
Þátttaka er ókeypis - verið öll velkomin - mætið vel búin í góðum gönguskóm og útivistarfatnaði.
Hér er yfirlit yfir næstu ferðir.