Frá vígslu sæluhúss FÍ á Mosfellsheiði - veðrið lék við gesti sem áttu mjög ánægjulega og hátíðlega stund. Fjallasýnin til Þingvalla var einstaklega tilkomumikil og fögur.
Vígsla sæluhúss FÍ á Mosfellsheiði
Ferðafélag Íslands vígði nýtt endurgert sæluhús félagsins á Mosfellsheiði sunnudaginn 22 júní að viðstöddum fjölmörgum gestum.
Ólöf Kristín Sívertsen, forseti FÍ bauð fólk velkomið og þakkaði sérstaklega öllum þeim sem hafa komið að endurbyggingu hússins. Þar hafa bræðurnir Örvar og Ævar Aðalsteinssynir annast byggingu hússins en auk þeirra var Unnsteini Elíassyni hleðslumeistara úr Borgarfirði, Bjarka Bjarnasyni sem leiddi undirbúning verkefnisins, leyfismál og fl., Bjarna Bjarnasyni frá Hraðastöðum og Jóni Sverri einnig þakkað fyrir þeirra framlag. Þá var Minjastofnun og Pétri Ármannssyni og Ugga Ævarssyni þakkað fyrir gott samstarf og stuðning sem og Erni Kærnested og fasteignafélaginu Bakka. Ólöf Kristín færði öllum þessum aðilum einstakar þakkir frá félaginu, blóm og gjafir.
Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ fór m.a. yfir sögu skálabygginga FÍ og starf félagsins í upphafi, sýn og drauma frumkvöðlanna og sjálfboðaliðanna sem leiddu starf félagins og byggðu upp á fyrstu árum þess. ,,Endurbygging sæluhússins er okkur hjá FÍ afar kær og okkur finnst mikilvægt að sinna því. Skilgreint hlutverk félagsins er m.a. bæði að skipuleggja ferðir um landið og standa að skálauppbyggingu og rekstri fjallaskála. Okkar hlutverk er einnig að halda til haga ýmsum fróðleik og huga að sögulegum rótum – framkvæmdirnar á Mosfellsheiði eru mjög í þeim anda," sagði Páll.
Bjarki Bjarnason fór m.a. yfir vegagerð á Mosfellsheiði, sagði sögu af enskum ferðalangi sem leitaði skjóls í sæluhúsinu í aftakaveðri og með koníak og súkkulaði í nesti, sem bjargaði lífi hans. Þá rakti hann tilurð verkefnis og framkvæmdasögu sæluhússins.
Örvar og Ævar Aðalsteinssynir greindu frá byggingu hússins, allt frá grunni og þar til verkinu var lokið. Þeir greindu frá því hvernig verkefnið hefði verið unnið í áföngum, frá ári til árs og gengið einstaklega vel.
Veðrið lék við gesti og fjallasýn til Þingvalla var einstaklega tilkomumikil. Fjölmargir hestamenn mættu i kaffi ( kristal ) og tóku lagið.
Pétur Ármannsson þakkaði fyrir ánægjulegt samstarf við alla þá sem að þessu verkefni hafa komið og greindi frá hugsanlegri friðun Þingvallavegar hins gamla, sem nú er í umsóknarferli.
Sr. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir, sóknarprestur í Mosfellsbæ blessaði sæluhúsið og hendur þeirra sem að komu, og mæltist einstaklega vel í fallegri ræðu.
Að lokum var boðið upp á léttar veitingar og Örævabandið tók nokkur lög inni í sæluhúsinu við góðar undirtektir.

Ólöf Krístín forseti FÍ og Jón Sverrir.

Örvar og Ævar Aðalsteinssynir hafa haft veg og vanda af endurbyggingu hússins og gert það með miklum sóma. Forseti FÍ færði þeim innilegar þakkir, blóm og gjafir.
Sr. Guðlaug sóknarprestur í Mosfellsbæ blessaði húsið og hendur allra sem að verkinu hafa komið. Sr. Guðlaugu mæltist einstaklega vel í fallegri ræðu við vígslu sæluhússins. Ólöf Krístín við hennar hlið.
Kór hestamanna tók lagið, frábær kór hjá þeim hestamönnum.

Bjarki Bjarnason sem hafði veg og vanda að undirbúningi verksins, hér á mynd með Unnsteinni Elíassyni hleðslumeistara úr Borgarfirði, sem veitti faglega ráðgjöf og vann við hleðslu hússins.
Eldri frétt
Ferðafélag Íslands endurreisir sæluhús á Mosfellsheiði
Ferðafélag Íslands hefur undanfarin misseri unnið að endurbyggingu á sæluhúsi austarlega á Mosfellsheiði. Það var upphaflega reist um 1890 við nýjan veg til Þingvalla sem gengur núna undir nafninu Gamli Þingvallavegurinn. Húsið var byggt úr tilhöggnu grágrýti, það var 7x4 m að flatarmáli og veggir 1,80 m á hæð. Á því var risþak, sennilega klætt með bárujárni og útidyr voru á langvegg.
Sumarið 2022 voru hleðslusteinarnir teknir ofan og raðað við hliðina á rústinni eftir ákveðnu kerfi. Síðan var grafið niður á klöpp og grunnurinn fylltur af grús. Eftir það lagðist vinnan í vetrardvala en í fyrrasumar var aftur tekið til óspilltra málanna og steyptur sökkull fyrir húsið. Á þeim grunni hafa veggirnir verið endurhlaðnir á sama hátt og gert var fyrir 130 árum. Þeir Örvar og Ævar Aðalsteinssynir hafa unnið þetta verk, með þeim hafa starfað Bjarni Bjarnason fjallkóngur og verktaki á Hraðastöðum í Mosfellsdal og Unnsteinn Elíasson hleðslumeistari frá Ferjubakka í Borgarfirði.
Veggjahleðslunni lauk haustið 2023 en í sumar hefur verið unnið að frágangi og frekari smíði og þak komið á húsið, en nú á eftir að klára hurð, glugga, gólf og fleira innanhúss .
Sjá eldri frétt:
Ferðafélag Íslands hefur undanfarin misseri unnið að endurbyggingu á sæluhúsi austarlega á Mosfellsheiði. Það var upphaflega reist um 1890 við nýjan veg til Þingvalla sem gengur núna undir nafninu Gamli Þingvallavegurinn. Húsið var byggt úr tilhöggnu grágrýti, það var 7x4 m að flatarmáli og veggir 1,80 m á hæð. Á því var risþak, sennilega klætt með bárujárni og útidyr voru á langvegg.

Í Árbók Ferðafélags Íslands árið 2019 er fjallað um Mosfellsheiði og eru höfundarnir þrír: Bjarki Bjarnason, Jón Svanþórsson og Margrét Sveinbjörnsdóttir, þau segja ítarlega frá sæluhúsinu á heiðinni og þar er einnig greint frá því að uppi séu hugmyndir um endurbyggingu þess í upprunalegri mynd. Þær hafa nú raungerst. Bjarki Bjarnason sem átti hugmyndina um endurbyggingu hússins var ráðinn umsjónarmaður með undirbúningi verksins. Bjarki segir að á ofanverðri 19. öld hafi töluvert verið byggt af húsum hérlendis úr tilhöggnu grágrýti og sæluhúsið á heiðinni fylli þann flokk. Steinhúsin voru einskonar millispil, torfhús höfðu verið allsráðandi um aldir en steinsteypt hús risu síðan á nýrri öld.

Sæluhúsið á Mosfellsheiði gerði sitt gagn í nokkra áratugi, það var jafnvel ferðamönnum til lífs að komast þangað í skjól í vályndum veðrum. En fyrir alþingishátíðina á Þingvöllum árið 1930 var nýr þjóðvegur lagður til Þingvalla á svipuðum slóðum og akvegurinn liggur þangað nú. Gamli Þingvallavegurinn var minna notaður en áður og einnig sæluhúsið, enda var notalegra að gista undir mjúkri sæng á gistihúsinu á Geithálsi eða Hótel Valhöll á Þingvöllum. Viðhaldi sæluhússins var ekki sinnt, þak, gluggar og hurð urðu veðrinu og tímanum að bráð og steinhlaðnir veggirnir féllu undan eigin þunga en hafa alltaf verið sýnilegir á sínum upphaflega stað.
„Þetta hús hefur mikið byggingarsögulegt gildi og er sannarlega þess virði að það verði varðveitt, segir Bjarki, og einnig Gamli Þingvallavegurinn sem lá þvert yfir heiðina frá Geithálsi að Almannagjá, nú eru uppi hugmyndir um friðlýsingu hans. Vegna endurbyggingarinnar var aflað tilskilinna leyfa, Arkitektastofan Argos vann tillögur að endurgerð hússins og Húsafriðunarsjóður hefur veitt rúmlega þrjár milljónir króna til þessara framkvæmda sem er um þriðjungur af kostnaðaráætlun verksins. Mér finnst það afar spennandi að vinna að þessari uppbyggingu og gaman að sjá húsið rísa úr öskustónni eftir ár og öld.“
Þegar öll tilskilin leyfi voru í höfn hófst endurreisnin á heiðinni á síðasta ári. Leitað var til tvíburabræðranna Ævars múrsmiðs og Örvars húsasmiðs Aðalsteinssona og óskað eftir því að þeir tækju endurbygginguna að sér. Þeir hafa mikla og góða verkþekkingu á þessu sviði og mikinn áhuga á málinu, hafa auk þess starfað sem fararstjórar fyrir Ferðafélag Íslands.
Sumarið 2022 voru hleðslusteinarnir teknir ofan og raðað við hliðina á rústinni eftir ákveðnu kerfi. Síðan var grafið niður á klöpp og grunnurinn fylltur af grús. Eftir það lagðist vinnan í vetrardvala en í fyrrasumar var aftur tekið til óspilltra málanna og steyptur sökkull fyrir húsið. Á þeim grunni hafa veggirnir verið endurhlaðnir á sama hátt og gert var fyrir 130 árum. Þeir Ævar og Örvar hafa unnið þetta verk, með þeim hafa starfað Bjarni Bjarnason
fjallkóngur og verktaki á Hraðastöðum í Mosfellsdal og Unnsteinn Elíasson hleðslumeistari frá Ferjubakka í Borgarfirði.
En hvenær eru áætluð verklok, Bjarki svarar því: „Veggjahleðslunni lauk haustið 2023 en í sumar hefur verið unnið að frágangi og frekari smíði og þak komið á húsið, en nú á eftir að klára hurð, glugga, gólf og fleira innanhúss .
Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélagsins segir endurbyggingu hússins mjög mikilvægt og skemmtilegt verkefni sem falli vel að tilgangi félagsins.
,,Endurbygging sæluhússins er okkur hjá FÍ afar kær og okkur finnst mikilvægt að sinna því. Skilgreint hlutverk félagsins er m.a. bæði að skipuleggja ferðir um landið og greiða leiðir fólks. Okkar hlutverk er þó ekki síður að halda til haga ýmsum fróðleik og huga að sögulegum rótum – framkvæmdirnar á Mosfellsheiði eru mjög í þeim anda.“