Ástjörn, Skarðshlíð og Vellir
- Lýsing
Gengið frá bílastæði við Haukahúsið og farið að Ástjörn og Hádegisskarði milli Grísaness og Ásfjallsaxlar vestri. Malarstíg í hlíðum Ásfjalls er fylgt um stund en síðan farið niður á Ásflatir á móts við Hamranes.
Þar hefur nýjasta íbúðahverfi Hafnarfjarðar risið á undanförnum árum. Gengið er fram hjá Skarðshlíðarskóla í áttina að Hraunavöllum, sem er gamalt örnefni. Þar er Hraunvallaskóli og þaðan er haldið til baka að Ástjarnarkirkju, Ásvallalaug og Haukahúsinu. Göngutími: 1,5–2 tímarVerið öll velkomin, þátttaka ókeypis.
- Brottför/Mæting
- kl. 20:00 frá bílastæði við Haukahúsið
- Fararstjórn
- Innifalið
- Fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
FÍ Örgöngur
- 6. maí. Fiskreitir í Hafnarfirði
- 13.maí. Setberg og Setbergshamar
- 20. maí. Mosahlíð og Öldur
- 27. maí. Ástjörn, Skarðshlíð og Vellir
- 12. September. Móskarðshnúkur og Stóri Skógarhvammur




