Ferð: Fáséðir staðir að Fjallabaki

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Fáséðir staðir að Fjallabaki

Lýsing

Krefjandi gönguferð með trússi og skálagistingu um sjaldséða staði og fáfarnar slóðir.

Þátttakendur þurfa að hafa meðferðis keðjubrodda og göngubelti með karabínu.

Brottför/Mæting
Brottför: Kl. 8 með rútu frá Reykjavík
Fararstjórn

Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir.

Innifalið
Rúta, gisting, trúss, farastjórn.

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Fróðleikur

Eftirfarandi árbækur fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.

 

Greiðslumöguleikar

  • Kreditkort / Debetkort: Greitt í einni greiðslu við bókun.
  • Bankamillifærsla: Greitt í einni greiðslu.
    Þegar skráningu í ferð hefur verið lokið sendir skrifstofa FÍ greiðsluupplýsingar.
    Greiðsla með millifærslu er því ekki gerð fyrr en bókun er staðfest.
  • Raðgreiðslusamningur: Lágmarks upphæð kr. 67.000.
    Hægt er að gera samning með því að hafa samband við skrifstofu FÍ.
  • Netgíró: Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir að greiða ferð í gengum Netgíró.

Raðgreiðslur og Netgíró fara eftir kjörum viðkomandi þjónustuaðila.
Við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vexti og skilmála áður en samningur er gerður.

Undirbúningur

Þátttakendur í ferð með FÍ hafa kynnt sér leiðarlýsingu og eru meðvitaðir um landslag og aðstæður sem leið ferðarinnar liggur um. Í ferðalýsingum má finna upplýsingar um aðbúnað, áætlaðan göngutíma, vegalengdir og hækkun.
Hér má kynna sér viðmið um erfiðleikastig ferða betur.

Gönguferðir og fjallgöngur eru besti undirbúningar fyrir ferðir FÍ og má t.d. nefna gönguferðir á Úlfarsfell, Helgafell eða Esju fyrir höfuðborgarbúa eða sambærileg fjöll eftir búsetu.

Almennt er gist í svefnpokaplássum í ferðum FÍ nema annað sé tekið fram.

Vinsamlegast kynnið ykkur ferðaskilmála Ferðafélag Íslands.

Leiðarlýsing

1.d., fimmtud. Rúta ekur hópnum úr Reykjavík kl. 8 að Klukkugilsfitjum á Dómadalsleið. Þar hittum við trússbíl, setjum farangur um borð og göngum svo af stað stikaða leið upp með Klukkugili, að Háöldu og þaðan í Hrafntinnusker. Gist í Höskuldsskála. Fáfarnar slóðir og ný sýn á umhverfi Laugavegarins. Ganga: 17 km. Hækkun: 900 m.  

2.d. Gengið úr Höskuldsskála yfir Hrafntinnusker um hverasvæði og krókaleiðir að hinum undurfögru en fáséðu Ljósárfossum efri. Svo niður í gil Ljósár en vaða þarf eftir því nokkurn spöl til að komast upp úr hinum megin. Þaðan um Ljósártungur að neðri fossum Ljósár og svo niður gegnum Grashaga að skála í Álftavatni. Ævintýraleiðangur um fáfarnar slóðir þar sem litadýrð líparítsins nær hámarki. Gist í skála FÍ við Álftavatn. Ganga: 17 km. Hækkun: um 400 m.   

3.d. Gengið frá skála við Álftavatn meðfram vatninu að hinu fagra Torfahlaupi í Markarfljóti. Þaðan eftir fáförnum slóðum meðfram fljótinu og yfir það á göngubrú við svonefndan Krók. Svo er gengið áfram meðfram ánni Hvítmögu um Reiðskarð í Hungurfit þar sem gist er. Ganga: 20 km. Hækkun: um 200 m.  

4.d. Yfirgefum Hungurfit og göngum upp á Tindfjallajökli að hinum eldrauða gíg Sindra. Þaðan meðfram Ásgrindum niður á Tindfjallajökul og yfir í Búraskarð. Á þessum hluta leiðarinnar þarf brodda og belti því þátttakendur munu ganga í línu yfir jökulinn. Þessi búnaður verður í trússinu þar til þennan dag.  
Leiðin liggur svo niður að skála ÍSALP efst í Tindfjöllum og þaðan niður að Fljótsdal innsta bæ í Fljótshlíð þar sem rúta bíður hópsins og flytur til Reykjavíkur. Ganga: 23 km. Hækkun: 900 m.  

Aðrar ferðir um Laugaveginn og Fjallabak sumarið 2026