Lónsöræfi II
- Lýsing
Mögnuð fimm daga sumarleyfisferð um ein tilkomumestu og afskekktustu öræfi landsins, meðfram jökultungum Vatnajökuls, þar sem andstæðurnar í landslaginu eru hvað stórfenglegastar.
- Brottför/Mæting
- Kl. 9 með rútu frá Egilsstaðaflugvelli.
- Fararstjórn
- Innifalið
- Rúta, gisting og fararstjórn.
Búnaður
Pakkað fyrir bakpokaferð
Þegar gengið er með allt á bakinu er nauðsynlegt að skera útbúnað niður eins og hægt er, án þess að sleppa nauðsynjum. Hafið bakpokann ekki þyngri en þið treystið ykkur til að bera. Hæfileg þyngd fer eftir líkamsástandi hvers og eins en oft er miðað við að bakpoki skuli ekki vera þyngri en 15-20% af líkamsþynd þess sem ber hann.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála, þá má í flestum skálum Ferðafélags Íslands finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis/kamars með klósettpappír.
Ýmislegt
- Bakpoki, ekki of stór
- Svefnpoki, léttur og hlýr
- Bakpokahlíf / plastpokar inn í bakpokann
- Tjald og tjalddýna
- Göngustafir
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Höfuðljós
- Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Broddar, ef þurfa þykir
- Peningar
- Hleðslubanki
Snyrtivörur / sjúkravörur
- Hælsærisplástur, plástur og teygjubindi
- Verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Tannbursti og tannkrem
- Sápa / sjampó
- Lítið handklæði / þvottapoki
- Sólvarnarkrem og varasalvi
- Eyrnatappar
Mataráhöld / eldunartæki
- Prímus, eldsneyti og pottur
- Eldspýtur
- Diskur og drykkjarmál
- Hnífapör
- Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
- Vasahnífur / skæri
Fatnaður
- Góðir gönguskór
- Vaðskór / skálaskór
- Tvö pör mjúkir göngusokkar
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Nærbuxur til skiptana
- Nærföt, ull eða flís
- Flís- eða ullarpeysa
- Millilag úr ull eða flís
- Göngubuxur
- Stuttbuxur
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar
Matur
- Frostþurrkaður matur
- Núðlur eða pasta í pokum
- Haframjöl
- Smurt brauð og flatkökur
- Hrökkbrauð og kex
- Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Kakó, te og/eða kaffi
- Súpur
- Krydd, t.d. salt og pipar
Fróðleikur
Eftirfarandi árbækur fjalla um svæðið og þær er hægt að kaupa í vefverslun okkar.
Greiðslumöguleikar
- Kreditkort / Debetkort: Greitt í einni greiðslu við bókun.
- Bankamillifærsla: Greitt í einni greiðslu.
Þegar skráningu í ferð hefur verið lokið sendir skrifstofa FÍ greiðsluupplýsingar.
Greiðsla með millifærslu er því ekki gerð fyrr en bókun er staðfest. - Raðgreiðslusamningur: Lágmarks upphæð kr. 67.000.
Hægt er að gera samning með því að hafa samband við skrifstofu FÍ. - Netgíró: Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir að greiða ferð í gengum Netgíró.
Raðgreiðslur og Netgíró fara eftir kjörum viðkomandi þjónustuaðila.
Við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vexti og skilmála áður en samningur er gerður.
Undirbúningur
Þátttakendur í ferð með FÍ hafa kynnt sér leiðarlýsingu og eru meðvitaðir um landslag og aðstæður sem leið ferðarinnar liggur um. Í ferðalýsingum má finna upplýsingar um aðbúnað, áætlaðan göngutíma, vegalengdir og hækkun.
Hér má kynna sér viðmið um erfiðleikastig ferða betur.
Gönguferðir og fjallgöngur eru besti undirbúningar fyrir ferðir FÍ og má t.d. nefna gönguferðir á Úlfarsfell, Helgafell eða Esju fyrir höfuðborgarbúa eða sambærileg fjöll eftir búsetu.
Almennt er gist í svefnpokaplássum í ferðum FÍ nema annað sé tekið fram.
Leiðarlýsing
1.d., miðvikud. Gengið um Eyjabakka austan Jökulsár í Fljótsdal með Snæfell á hægri hönd. Eyjabakkafoss skoðaður og stefnt í átt að Eyjabakkajökli, norður fyrir Bergkvíslarkofa og að skála við Geldingafell. Ganga: 15 km.
2.d. Gengið meðfram Geldingafelli um jökulurðir og ógrónar öldur, fram á brúnir Vesturdals að upptökum Jökulsár í Lóni og hrikalegum fossi. Haldið upp með Vesturdalsánni, yfir að Kollumúlavatni. Gist í Egilsseli í tvær nætur. Ganga: 20 km.
3.d. Deginum varið í nágrenni Egilssels. Gengið í Víðidal og ummerki búsetu á þessum afskekkta stað skoðuð. Komið við á Kollumúlakollinum á heimleiðinni og jafnvel farið í bað í heiðarvatninu. Ganga: 6–10 km.
4.d. Heiðarkyrrðin yfirgefin og haldið að Tröllakrókahnaus, um Tröllakróka niður í Leiðartungur. Tvær leiðir eru mögulegar, um Leiðartungur eða Gilin. Landslagið ber nafn með rentu, m.a. Tröllakrókar og Stórusteinar og litadýrðin er óviðjafnanleg. Gist í Múlaskála, skála Ferðafélags Austur-Skaftfellinga. Farið í kvöldgöngur. Ganga: 10–12 km.
5.d. Haldið um Illakamb og fram alla Kamba suður í Smiðjunes. Hrikalegt landslag Jökulsárgljúfra og Hnappadalstindur og Jökulgilstindar blasa við. Ganga: 19 km. Rúta frá Smiðjunesi til Egilsstaða.
Aðrar ferðir á Austurlandi sumarið 2026
- 15. - 19. júlí - Lónsöræfi I
- 22. - 26. júlí - Víknaslóðir I
- 29. júlí - 2. ágúst - Lónsöræfi II
- 5. - 9. ágúst - Víknaslóðir II






