Ylur og birta í Hornbjargsvita
- Lýsing
Þátttakendur mæta til Norðurfjarðar daginn fyrir ferð og gista í skála Ferðafélags Íslands á Valgeirsstöðum.
Daginn eftir kl. 10 er haldið af stað með bát frá bryggjunni í Norðurfirði og siglt til Látravíkur, ef aðstæður leyfa, annars í Hornvík þaðan sem gengið er í Hornbjargsvita.
Þegar þangað er komið er tekið til hendinni og gengið í ýmis vorverk; málningarvinnu, þrif, smíði, viðhald og undirbúning fyrir sumaropnun. Aðalvinnan felst í því að koma upp stiga og rennu ofan í fjöru til að flytja fólk, farangur og vistir. Halldór Hafdal, staðarhaldari í Hornbjargsvita, er öflugur veiðimaður og mokar upp aflanum á sjóstöng. Þátttakendur njóta góðs af því og fá án efa að smakka hans rómuðu fiskibollur.- Brottför/Mæting
- Á einkabílum kl. 18 á Valgeirsstaði í Norðurfirði.
- Fararstjórn
Halldór Hafdal Halldórsson og Pétur Ásgeirsson
- Innifalið
- Sigling, gisting, allur matur í Hornbjargsvita og fararstjórn.
Búnaður
Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð
Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.
Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.
Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
Í trússtöskunni
- Svefnpoki og lítill koddi
- Bolur til skiptana og til að sofa í
- Auka nærbuxur og sokkar
- Höfuðljós
- Tannbursti og tannkrem
- Sápa / sjampó
- Lítið handklæði
- Eyrnatappar
- Skálaskór
- Peningar
- Núðlur eða pasta í pokum
- Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
- Eitthvað gott á grillið
- Kol og uppkveikilögur
- Haframjöl
- Brauð og flatkökur
- Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
- Hrökkbrauð og kex
- Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Kakó, te og/eða kaffi
- Súpur
- Krydd, t.d. salt og pipar
Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna
- Tjald og tjalddýna
- Prímus og eldsneyti
- Eldspýtur
- Pottur
- Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
- Diskur og drykkjarmál
- Hnífapör
- Vasahnífur / skæri
- Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
Fróðleikur
Eftirfarandi árbók fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.
Gott að vita:
- Oft er kalt í húsinu fyrsta sólahringinn og er því nauðsynlegt að taka með sér föðurlandið og ullarsokkana
- Vinnuföt - Vinnuvettlinga - Vinnuskó
- Inniskó
- Göngufatnað - Gönguskór
-
Allur matur er innifalinn. Eitthvað til að maula á milli mála, súkkulaði eða þess háttar kemur hver og einn með sjálfur.
Hægt að greiða ferðir með raðgreiðslum eða netgíró.
Aðrar Hornstrandaferðir sumarið 2026
- 11.-15. júní - Ylur og birta í Hornbjargsvita – Vinnuferð
- 17.-21. júní - Söguferð um Hornstrandir
- 19.-21. júní - Hesteyri, Kagrafell og Sæból í Aðalvík I
- 2.-5. júlí - Herstöðvar og horfið mannlíf
- 3.-6. júlí - Hinar einu sönnu Hornstrandir I
- 13.-17. júlí - Fótspor Frímanns og ævintýri Huldu
- 23.-26. júlí - Hinar einu sönnu Hornstrandir II
- 7.-9. ágúst - Hesteyri, Kagrafell og Sæból í Aðalvík II
- 7.-10. ágúst - Refir, sjóböð og ævintýri í Hlöðuvík - Ferðafélag barnanna




