Fjallaverkefni FÍ 2020

Á toppi Hafnarfjalls
Á toppi Hafnarfjalls

Ferðafélag Íslands býður upp á fjölmörg fjallaverkefni sem mörg hver hefjast í upphafi árs 2020. Því er kjörið tækifæri að skora á sjálfan sig og aðra og taka þátt í skemmtilegum verkefnum, þar sem boðið er upp á heilbriðga góða hreyfingu, kennslu og þjálfun í fjallamennsku, skemmtilegan félagsskap og stór skref í átt að heilbrigðum lífsstíll.  Verkefnin sem hefjast strax í upphafi árs 2020 eru FÍ Alla leið, FÍ Næsta skrefið, FÍ Fótfrár, léttfeti og þrautseigur og nýtt verkefnið sem hlotið hefur nafnið FÍ jóga og göngur.  Skráning í þessi verkefni er þegar hafin bæði hér á heimasíðunni og á skrifstofu FÍ. 

Önnur verkefni sem hefjast ýmist að vori eða hausti verða kynnt síðar. 

Skráning er hafin í fjallaverkefni  FÍ 2020.

FÍ Alla leið, 

FÍ Fyrsta skrefið 

FÍ Léttfeti

FÍ Fótfrár

FÍ Þrautseigur, sem eru bæði Léttfeti og Fótfrár

FÍ Jóga og göngur

Að gefnu tilefni minnum við á að það borgar sig ekki að bíða of lengi með skráningu því það hefur fyllst hratt í suma hópa. 

Fjallaverkefni FÍ 2020 

Ferðafélag Íslands heldur úti nokkrum fjallaverkefnum, sem mörg hver hefjast í upphafi árs 2020 og snúast um reglulegar fjallgöngur, kennslu og þjálfun í fjallamennsku,  heilsubót og góðan félagsskap.

Meginmarkmið þessara hópa er útivera, náttúruupplifun, gleði og góður félagsskapur. Eins og í öllum ferðum Ferðafélags Íslands er mikil áhersla lögð á fræðslu og öryggi á fjöllum.

Hér að neðan er stutt yfirlit yfir þessi verkefni en allar nánari upplýsingar má nálgast með því að smella á heiti hvers verkefnis eða beint á viðeigandi undirsíðu hér til hliðar.

Gönguhópur FÍ

FÍ Alla Leið og Haustgöngur Alla leið

Fjallaverkefnið Alla leið er verkefni sem miðar að því að undirbúa þátttakendur fyrir krefjandi fjallgöngur, meðal annars jöklagöngur þar sem gengið er á Hvannadalshnúk eða aðra hæstu tinda landsins að vori. Undirbúningurinn er þríþættur og felst í vikulegum fjallgöngum, sem stigmagnast að erfiðleikastigi, alhliða ferðafræðslu um klæðnað, búnað, næringu, öryggismál og jöklagöngur og svo vikulegum þrekæfingum. Eftir sumarfrí tekur við nýtt verkefni, Haustgöngur Alla leið, sem stendur til áramóta. Greitt er sérstaklega fyrir hvort verkefni fyrir sig.

Umsjón: Hjalti Björnsson.
Kynningarfundur vorverkefnis: Miðvikudaginn 8. janúar kl. 19 í sal FÍ, Mörkinni 6.
Verð: 67.900.

FÍ Fyrsta skrefið og Næsta skrefið

Fyrsta skrefið byggist á reglubundnum göngum á þægileg fjöll. Gengið er á mismunandi fjöll einu sinni í viku og að auki á Úlfarsfell alla miðvikudaga. Farið er á hraða sem hentar hópnum og þrek fólks er smám saman byggt upp. Auk hefðbundinna fjallgangna er boðið upp á dans, hjólreiðar og sjósund. Eftir sumarfrí tekur við nýtt verkefni, Næsta skrefið, frá september til áramóta. Greitt er sérstaklega fyrir hvort verkefni fyrir sig. 

Umsjón: Reynir Traustason og Ólafur Sveinsson.
Kynningarfundur FÍ Fyrsta skrefið: Fimmtudaginn 2. janúar kl. 20 í sal FÍ, Mörkinni 6.
Verð: 73.900. 

FÍ Léttfeti. Eitt fjall á mánuði

Þetta verkefni stendur allt árið og er hugsað fyrir þá sem vilja koma sér af stað að nýju eftir hlé sem og alla þá sem vilja koma reglulegum, auðveldum fjallgöngum inn í dagatalið sitt. Farið er í 10 dagsferðir og eina helgarferð þannig að alls er gengið á að minnsta kosti 12 fjöll. Fjöllin sem fyrir valinu verða teljast létt til miðlungs erfið en miðað er við að ganga rólega.  

Umsjón: Einar Ragnar Sigurðsson og Höskuldur Björnsson.
Kynningarfundur: Þriðjudaginn 7. janúar kl. 20 í sal FÍ, Mörkinni 6.
Verð: 43.900.

FÍ Fótfrár. Eitt fjall á mánuði

Þetta verkefni stendur allt árið og er tilvalið fyrir þá sem hafa einhverja reynslu af fjallgöngum þar sem þessi hópur ræðst til uppgöngu á erfiðari og meira krefjandi fjöll. Þátttakendur þurfa því að vera í nokkuð góðu gönguformi. Farið er í 10 dagsferðir og eina helgarferð þannig að alls er gengið á að minnsta kosti 12 fjöll. Göngurnar verða heldur hraðari og meira krefjandi en í verkefninu Léttfeta. 

Umsjón: Einar Ragnar Sigurðsson og Höskuldur Björnsson.
Kynningarfundur: Þriðjudaginn 7. janúar kl. 20 í sal FÍ, Mörkinni 6.
Verð: 43.900.

FÍ Þrautseigur. Tvö fjöll á mánuði

Þeim sem vilja ganga meira og hittast oftar gefst kostur á að taka þátt í báðum verkefnunum hér að ofan og ganga þá á að minnsta kosti 24 fjöll yfir árið í 20 dagsferðum og tveimur helgarferðum. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðu gönguformi því bæði er gengið á létt og krefjandi fjöll. 

Umsjón: Einar Ragnar Sigurðsson og Höskuldur Björnsson.
Kynningarfundur: Þriðjudaginn 7. janúar kl. 20 í sal FÍ, Mörkinni 6.
Verð: 73.900.

FÍ Jóga og göngur

FÍ Jóga og göngur er verkefni fyrir alla sem vilja njóta útivistar ásamt því að læra aðferðir til að draga úr streituviðbrögðum og ná slökun. Verkefnið stendur frá janúar til maí og í hverri viku er farið í eina stutta og rólega gönguferð í nágrenni Reykjavíkur og í einn djúpslökunartíma í jóga. Þetta er hópur fyrir þá sem vilja njóta en ekki þjóta og langar til að gera útivist og jóga að lífsstíl.

Umsjón: Edith Gunnarsdóttir.
Kynningarfundur: Fimmtudaginn 9. janúar kl. 20 í sal FÍ, Mörkinni 6.
Verð: 67.900.