Hinar einu sönnu Hornstrandir I
- Lýsing
Á Hornströndum renna haf og himinn saman í stórbrotinni fegurð og dulúð. Í þessari ferð hefst ævintýrið með siglingu inn í Jökulfirði og heldur áfram með göngu yfir í Hornbjargsvita, um hið mikla Hornbjarg og blómskrúðið í Hornvík. Einstök náttúra blasir alls staðar við. Ekki spillir hin litríka og sérstæða mannlífssaga sem við fræðumst um á leiðinni.
Gist er í þrjár nætur í Hornbjargsvita og dvalið við náttúruskoðun og gönguferðir. Sameiginlegur matur, fyrir utan dagsnesti fyrsta daginn. Þátttakendur hafa með sér svefnpoka og fatnað til ferðarinnar sem þeir bera frá Lónafirði yfir í Hornbjargsvita í upphafi ferðar og frá Hornbjargsvita yfir í Veiðileysufjörð í lok ferðar.Fremur erfið þriggja skóa ferð, langar dagleiðir, talsverð hækkun og víða grýttar slóðir. Nauðsynlegt að vera í góðu formi til þess að njóta ferðarinnar og gott að miða við að geta farið upp að Steini í Esju á um klukkutíma.
- Brottför/Mæting
- Kl. 8:30 á bryggjuna á Ísafirði. Brottför Kl. 9.
- Fararstjórn
- Innifalið
- Sigling, gisting, fullt fæði og fararstjórn.
Búnaður
Pakkað fyrir bakpokaferð
Þegar gengið er með allt á bakinu er nauðsynlegt að skera útbúnað niður eins og hægt er, án þess að sleppa nauðsynjum. Hafið bakpokann ekki þyngri en þið treystið ykkur til að bera. Hæfileg þyngd fer eftir líkamsástandi hvers og eins en oft er miðað við að bakpoki skuli ekki vera þyngri en 15-20% af líkamsþynd þess sem ber hann.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála, þá má í flestum skálum Ferðafélags Íslands finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis/kamars með klósettpappír.
Ýmislegt
- Bakpoki, ekki of stór
- Svefnpoki, léttur og hlýr
- Bakpokahlíf / plastpokar inn í bakpokann
- Tjald og tjalddýna
- Göngustafir
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Höfuðljós
- Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Broddar, ef þurfa þykir
- Peningar
- Hleðslubanki
Snyrtivörur / sjúkravörur
- Hælsærisplástur, plástur og teygjubindi
- Verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Tannbursti og tannkrem
- Sápa / sjampó
- Lítið handklæði / þvottapoki
- Sólvarnarkrem og varasalvi
- Eyrnatappar
Mataráhöld / eldunartæki
- Prímus, eldsneyti og pottur
- Eldspýtur
- Diskur og drykkjarmál
- Hnífapör
- Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
- Vasahnífur / skæri
Fatnaður
- Góðir gönguskór
- Vaðskór / skálaskór
- Tvö pör mjúkir göngusokkar
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Nærbuxur til skiptana
- Nærföt, ull eða flís
- Flís- eða ullarpeysa
- Millilag úr ull eða flís
- Göngubuxur
- Stuttbuxur
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar
Matur
- Frostþurrkaður matur
- Núðlur eða pasta í pokum
- Haframjöl
- Smurt brauð og flatkökur
- Hrökkbrauð og kex
- Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Kakó, te og/eða kaffi
- Súpur
- Krydd, t.d. salt og pipar
Fróðleikur
Eftirfarandi árbók fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.
Heimur Hornstranda
Hornstrandir hafa í gegnum tíðina heillað marga. Dæmi eru um að fólk fari áratugum saman á þessar harðbýlu slóðir og uppgötvi stöðugt eitthvað nýtt. Sú var tíð að þéttbýlt var á Hornströndum. Nú er staðan sú að enginn er þar yfir harðasta veturinn en þegar vorar birtist sumarfólkið.
Greiðslumöguleikar
- Kreditkort / Debetkort: Greitt í einni greiðslu við bókun.
- Bankamillifærsla: Greitt í einni greiðslu.
Þegar skráningu í ferð hefur verið lokið sendir skrifstofa FÍ greiðsluupplýsingar.
Greiðsla með millifærslu er því ekki gerð fyrr en bókun er staðfest. - Raðgreiðslusamningur: Lágmarks upphæð kr. 67.000.
Hægt er að gera samning með því að hafa samband við skrifstofu FÍ. - Netgíró: Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir að greiða ferð í gengum Netgíró.
Raðgreiðslur og Netgíró fara eftir kjörum viðkomandi þjónustuaðila.
Við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vexti og skilmála áður en samningur er gerður.
Undirbúningur
Þátttakendur í ferð með FÍ hafa kynnt sér leiðarlýsingu og eru meðvitaðir um landslag og aðstæður sem leið ferðarinnar liggur um. Í ferðalýsingum má finna upplýsingar um aðbúnað, áætlaðan göngutíma, vegalengdir og hækkun.
Hér má kynna sér viðmið um erfiðleikastig ferða betur.
Gönguferðir og fjallgöngur eru besti undirbúningar fyrir ferðir FÍ og má t.d. nefna gönguferðir á Úlfarsfell, Helgafell eða Esju fyrir höfuðborgarbúa eða sambærileg fjöll eftir búsetu.
Almennt er gist í svefnpokaplássum í ferðum FÍ nema annað sé tekið fram.
Leiðarlýsing
1.d., föstud. Siglt í Lónafjörð í Jökulfjörðum þaðan sem þátttakendur ganga með allan farangur, fyrir utan mat, yfir Snókaheiði og í Hornbjargsvita. Ganga: 14 km. Hækkun 500 m.
2.d. Gengið um Hornvík á Hornbjarg og ef til vill Kálfatinda. Til baka um Almenningaskarð. Ganga: 20 km. Hækkun 1100 m.
3.d. Gengið um Hrollaugsvík og Bjarnarnes, með áherslu á sögu staðanna og lífríki Hornstranda. Ganga: 13 km. Hækkun 400 m.
4.d. Gengið um Kýrskarð yfir í Hornvík þar sem vaða þarf Hafnarósinn. Saga Hafnar rifjuð upp. Farið um Hafnarskarð yfir í Veiðileysufjörð þar sem báturinn bíður. Ganga: 17 km. Hækkun 800 m.
Aðrar Hornstrandaferðir sumarið 2026
- 11.-15. júní - Ylur og birta í Hornbjargsvita – Vinnuferð
- 17.-21. júní - Söguferð um Hornstrandir
- 19.-21. júní - Hesteyri, Kagrafell og Sæból í Aðalvík I
- 2.-5. júlí - Herstöðvar og horfið mannlíf
- 3.-6. júlí - Hinar einu sönnu Hornstrandir I
- 13.-17. júlí - Fótspor Frímanns og ævintýri Huldu
- 23.-26. júlí - Hinar einu sönnu Hornstrandir II
- 7.-9. ágúst - Hesteyri, Kagrafell og Sæból í Aðalvík II
- 7.-10. ágúst - Refir, sjóböð og ævintýri í Hlöðuvík - Ferðafélag barnanna





