Árbók Ferðafélags Íslands 2026

Árbók 2026
Árbók 2026

Árbók Ferðafélags Íslands 2026 ber heitið KJÓSARSÝSLA og er nr. 99 í þessari merku ritröð. Kjósarsýsla náði yfir þrjú sveitarfélög sem voru Mosfellshreppur, Kjalarneshreppur og Kjósarhreppur.Fyrrum var Kjósarsýsla stærri því Mosfellshreppur náði um aldir niður að Elliðaánum en þau sveitarfélagsmörk breyttust á 20. öld. Áður fyrr höfðu þessi þrjú sveitarfélög samstarf um margt til dæmis um safnaðarstarf, skólastarf, fjárleitir og íþróttamót en með bættum samgöngum og breyttum atvinnuháttum hefur slíkt samstarf tekið miklum stakkaskiptum.

 

Yfir sögusviði árbókarinnar gnæfir fjallgarðurinn Esjan sem hefur fylgst með mannlífinu í Kjósarsýslusveitum frá upphafi vega. Bókin fjallar um sýsluna frá margvíslegum sjónarhornum, hún skiptist í tíu hluta, sem dæmi fjallar einn hlutinn um náttúrufar, annar um kirkjur og kristnihald og sá þriðji um dýrin stór og smá.

 

Bjarki Bjarnason er höfundur árbókarinnar, hann gjörþekkir þetta landsvæði og hefur búið í Mosfellssveit frá bernskuskeiði. Í væntanlegri árbók eru margar nýjar og áhugaverðar ljósmyndir sem Daníel Bergmann tók, hann er einnig umbrotsmaður og ritstjóri bókarinnar. Í bókinni eru allmörg kort sem Ingibjörg Jónsdóttir vann, þarna er meðal annars að finna jarðfræðikort, gróðurkort og kort sem sýnir staðsetningu á herbúðum sem risu víða í Kjósarsýslusveitum í seinni heimsstyrjöldinni. Í ritnefnd árbókar sitja Gísli Már Gíslason formaður, Guðrún Kvaran, Eiríkur Þormóðsson, Rósa Sigrún Jónsdóttir og Pétur Eggerz.

 

Árbókin var send í prentun í apríl og er væntanleg til okkar um miðjan maí og verður þá um leið send út til félagsmanna sem hafa greitt árgjaldið.