Lóðaleigusamningar og nýr Skagfjörðsskáli

Skagfjörðsskáli í Langadal á Þórsmörk. Skálinn verður endurbyggður í ár og nýr skáli tekinn í notkun á afmælisárinu 2027.
Skagfjörðsskáli í Langadal á Þórsmörk. Skálinn verður endurbyggður í ár og nýr skáli tekinn í notkun á afmælisárinu 2027.

Í ársskýrslu Ferðafélags Íslands fyrir árið 2025, sem Ólöf Kristín Sívertsen forseti FÍ flutti á aðalfundi 18. mars sl., kom fram að starfsemi félagsins er mjög umfangsmikil og mikið og gott starf unnið á öllum kjörsviðum félagsins. Ólöf Kristín þakkaði öllum þeim fjölmörgu sem hafa lagt starfi Ferðafélagsins lið með einum eða öðrum hætti. Sérstaklega þakkaði hún öllum sjálfboðaliðum sem í grunninn hafa með vinnu sinni til áratuga, byggt upp sterka stöðu félagsins.

Ólöf kom víða við í ársskýrslu félagsins. Meðal annars greindi hún frá stöðu mála varðandi nýjan Skagfjörðsskála og sagði frá lóðaleigusamningum sem gerðir hafa verið fyrir lóðir í Langadal, Húsadal og Emstrum og undirritaðir af Rangárþingi eystra, Forsætisráðuneytinu og FÍ nú fyrir skömmu.

Lóðaleigusamningar og nýr Skagfjörðsskáli

Skagfjörðsskáli FÍ í Langadal Þórsmörk - nýr skáli rís þar í haust. 

,,Stærsta verkefni félagsins um þessar mundir er endurnýjun og endurbygging Skagfjörðsskála í Langadal. Vinna við undirbúning verkefnisins hefur staðið síðastliðin ár en stjórn ákvað að ganga ekki frá samningum um byggingu skálans fyrr en lóðaleigusamningar væru í höfn. Því er mér það bæði ljúft og skylt að upplýsa ykkur um að núna í febrúar sl. var loks gengið frá og skrifað undir lóðaleigusamninga milli Ferðafélagsins, Rangárþings eystra og Forsætisráðuneytisins. Samningarnir taka til allra þeirra lóða sem Ferðafélagið hefur haft til umráða í Langadal, Húsadal og Emstrum og óhætt er að fullyrða að þetta sé einn af stóru sigrunum í sögu félagsins. Við getum sannarlega verið stolt og þakklát fyrir það að vera treyst fyrir þessum helstu perlum íslenskrar náttúru“, sagði Ólöf og hélt áfram:

,,Þessu til viðbótar þá urðu þau miklu tíðindi í síðustu viku að undirritaður var annar mjög mikilvægur samningur, samningur við SG hús um uppbyggingu nýs Skagfjörðsskála. Samkvæmt verkáætlun er stefnt að því að nýi skálinn verði vígður þann 17. júní 2027 eða á 100 ára afmælisári félagsins. Skálinn verður byggður á grunni þess gamla sem verður rifinn. Nýi skálinn verður með sama útliti og sá eldri en innra skipulag hefur verið uppfært með betra eldhúsi, stærri matsal, meira útsýni og salerni í skálanum. Ef allt gengur upp varðandi leyfismál og samninga verður hafist handa við að rífa gamla skálann núna í haust enda verður þá bygging nýs skála vel á veg komin í byggð. Nýr skáli verður fluttur í sex einingum í Langadal og einingarnar settar saman á skömmum tíma. Þannig næst að loka skálanum en veturinn verður síðan nýttur til vinnu innandyra til að hann verði tilbúinn sumarið 2027, " sagði Ólöf Krístín þegar hún fór yfir ársskýrslu félagsins á aðalfundinum .

 

 Skýrsla stjórnar FI 2025

Forseti: Ólöf Kristín Sívertsen

Varaforseti: Elín Björk Jónasdóttir

Ritari: Gísli Már Gíslason

Gjaldkeri: Gestur Pétursson

Meðstjórnendur:

Agnes Ósk Sigmundardóttir

Hrönn Vilhjálmsdóttir
Salvör Nordal
Sigurður Ragnarsson
Tómas Guðbjartsson

Framkvæmdastjóri: Páll Guðmundsson.

Starfsnefndir

Ferðanefnd: Tómas Guðbjartsson formaður, Salóme Hallfreðsdóttir

Hrönn Vilhjálmsdóttir og Páll Ásgeir Ásgeirsson.

Byggingarnefnd: Sigurður R. Ragnarsson, Stefán Jökull Jakobsson og Páll Guðmundsson.

Skálanefndir, fóstrar í skálum:

  • Valgeirsstaðir: Valgarður L. Jónsson, Ágúst Heimisson og Hlín Guðný Valgarðsd
  • Hrafntinnusker: Ívar Arndal, Pétur Guðmundsson og Magnús Jaró.
  • Nýidalur: Soffía Sigurðardóttir og Sigurður Ingi Andrésson.
  • Þjófadalir: Bragi Hannibalsson.
  • Þverbrekknamúli: Jóhannes Georgsson og Magnús Böðvarsson.
  • Hagavatn: Guðmundur Önundarson og Íris Ósk Kristjánsdóttir
  • Baldvinsskáli: Skrifstofa FÍ
  • Langidalur: Skrifstofa FÍ
  • Álftavatn: Skrifstofa FÍ
  • Emstrur: Skrifstofa FÍ
  • Húsadalur: Skrifstofa FÍ
  • Hvanngil: Skrifstofa FÍ
  • Hlöðuvellir: Skrifstofa FÍ
  • Hvítárnes: Skrifstofa FÍ

Útgáfunefnd fræðslurita: Elín Björk Jónasdóttir, formaður, Birgir Sigurðss., Birgir Guðmunds.

Í samvinnunefnd um Friðland að Fjallabaki: Ólafur Örn Haraldsson.

Mörkin 6, húsfélag: Páll Guðmundsson.

Í stjórn minningarsjóðs Ársæls Jónssonar og Minningarsjóða Páls Jónssonar: Ólöf Kristín S.

Uppstillingarnefnd: Ólöf Sigurðard., formaður, Steinunn Leifsd, Bjarni Már Gylfas.

Ritstjóri árbókar: Daníel Bergmann

Ritnefnd: Gísli Már Gíslason líffræðingur formaður, Eiríkur Þormóðsson,

Guðrún Kvaran, Rósa Sigrún Jónsdóttir, Pétur Eggertz.

Umsjón með samfélagsmiðlum og fréttapósti: Skrifstofa FÍ

Kjörsvið félagsins er sem fyrr ferðir, skálarekstur, uppbygging gönguleiða og aðstöðu fyrir ferðamenn, útgáfustarf, fræðsla og náttúruvernd.

Á árinu 2025 létust tveir félagar sem við viljum minnast sérstaklega:

Hjalti Kristgeirsson (f. 1933), ritstjóri árbókar FÍ árin 1988–2006, lést í maí 2025. Hjalti átti stóran þátt í að færa árbókina í nútímalegt form með breyttu og bættu umbroti, góðum myndum og kortum. Hjalti var mikill fagmaður í sínu starfi, einstaklega nákvæmur og vandvirkur. Hann bjó yfir mikilli þekkingu á landinu og hafði yfirburða vald á íslenskri tungu. Allir þessir góðu kostir Hjalta sem ritstjóra skiluðu sér í vandaðri útgáfu árbókanna.

Einar Ragnar Sigurðsson (f. 1967), fararstjóri og umsjónarmaður gönguhópa FÍ, lést í byrjun júní 2025. Einar Ragnar stýrði vinsælum gönguhópum hjá félaginu í mörg ár. Hann var frábær fararstjóri, hafði mikla þekkingu á landinu og reynslu af ferðalögum sem hann miðlaði til annarra af auðmýkt og vináttu. Andlát hans bar mjög brátt að eftir skammvinn veikindi. Meðfararstjórar Einars í gönguhópum stóðu fyrir söfnun í minningu hans og rann allt fé sem safnaðist til Landverndar.

Blessuð sé minning þeirra Hjalta og Einars Ragnars.

Árið 2025

Sumarið 2025 var gott ferðasumar þar sem veðrið lék við þá landsmenn sem voru á faraldsfæti. Veðrið hefur jafnan áhrif á ferðalöngun fólks og sífellt fleiri hafa lært að elta góða veðrið. Fyrir vikið hefur veðrið einnig áhrif á bókanir í ferðir félagsins og þegar upp var staðið varð mikil þátttaka í ferðum félagsins og góðar bókanir í skála.

Ferðaáætlun ársins

Ferðaáætlun ársins 2025 kom út í desember 2024 og hefur nú undanfarin þrjú ár eingöngu komið út á rafrænu formi og er fyrir vikið bæði umhverfisvænni og hagkvæmari í útgáfu. Stafræn útgáfa ferðaáætlunar gefur einnig möguleika á meiri sveigjanleika og hægt er að bæta við og/eða breyta ferðum eftir aðstæðum og atvikum. Útgáfa ferðaáætlunar í desember hefur einnig reynst afar jákvæð þar sem ferðafélagar nýta tækifærið og gefa aðild i félagið, skipulagðar ferðir og þátttöku í gönguhópa í jólagjafir. Er það sannarlega frábær og heilsueflandi jólagjöf sem leiðir til útivistar og reglubundinnar hreyfingar í góðum félagsskap. Strax á fyrsta útgáfudegi ferðaáætlunar varð fullbókað í nokkrar ferðir. Söguferð með Sigrúnu Valbergsdóttur er jafnan ein vinsælasta ferðin og vinnuferð í Hornbjargsvita fullbókast einnig fljótt. Strax á nýju ári, eftir veisluhöld hátíðanna, eru svo enn fleiri sem skrá sig í bæði ferðir og gönguhópa félagsins. Segja má að á fyrstu þremur til fjórum mánuðum ársins séu flestir ferðafélagar búnir að skrá sig í þær sumarleyfisferðir sem þeir ætla að taka þátt í á árinu.

Félagið býður upp á fjölmarga og sívinsæla gönguhópa sem bera nöfnin: FÍ Alla leið, FÍ Þrautseigur, FÍ Léttfeti, FÍ Fótfrár og FÍ Kvennakraftur, FÍ Þjóðleiðir, FÍ Tifað á tinda, FÍ Alpahópur og FÍ Byrjum saman, sem er nýtt verkefni sem fór af stað haustið 2025. Stór hópur fararstjóra FÍ hefur komið að fararstjórn í gönguhópunum en fjöldi fararstjóra fer eftir fjölda þátttakenda. FÍ hefur á síðari árum sett hámarksfjölda í hópa, sem er oft í kringum 30 til 40 manns, þó svo að einstaka hópar séu með 60 til 70 skráða þátttakendur. Hver hópur hefur svo sinn umsjónarmann sem leiðir verkefnið, annast samskipti við þátttakendur og skrifstofu, heldur utan um fésbókarhópa, sendir upplýsingar á póstlista hópsins og raðar fararstjórum á ferðir. Umsjónarmenn gönguhópa hafa m.a. verið: Hjalti Björnsson. Höskuldur Björnsson, Einar Ragnar Sigurðsson, Steinunn Leifsdóttir, Agnes Ósk Sigmundardóttir, Guðrún Gunnsteinsdóttir, Reynir Traustason, Rósa Sigrún Jónsdóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Jónatan Garðarsson, Ingibjörg Jónsdóttir og Ólöf Sigurðardóttir.

Félagið stóð fyrir gönguhóp í samstarfi við Krabbameinsfélagið sem nefnist FÍ Heilnæm útivist og fræðsla sem er hugsaður fyrir þá sem hafa tekist á við krabbamein og aðstandendur þeirra og hefur þetta verkefni fengið afar góðar viðtökur. FÍ og Krabbameinsfélagið settu þetta verkefni fyrst af stað fyrir tveimur árum og hefur umsjón og fararstjórn verið í höndum hjónanna Rósu Sigrúnar Jónsdóttur og Páls Ásgeirs Ásgeirssonar.

Á meðal verkefna sem jafnframt njóta mikilla vinsælda hjá FÍ er verðlaunaverkefnið Með fróðleik í fararnesti í samstarfi við Háskóla Íslands og var mæting þar oft talin í hundruðum þátttakenda, eins og t.d. í sveppaferðina og pödduferðina. Norðurljósaferðir, kræklingaferðir og Fjallagarpaverkefnið hafa einnig í gegnum tíðina notið mikilla vinsælda.

Ferðafélag barnanna

Ferðafélag barnanna bauð að venju upp á glæsilega dagskrá, bæði lengri og styttri ferðir. Hjónin Hrönn Vilhjálmsdóttir og Hörður Ingþór Harðarson hafa undanfarin ár haft umsjón með starfi Ferðafélags barnanna sem var stofnað fyrir rúmum 10 árum að norskri fyrirmynd og hlaut strax afar góðar viðtökur og hefur verið á sigurför allar götur síðan. Ferðafélag barnanna stendur fyrir veglegri ferðaáætlun sem er aðgengileg á heimasíðu FÍ. Ferðirnar eru fyrst og fremst hugsaðar fyrir félagsfólk FÍ og börn þeirra en eru þó opnar öllum til þátttöku. Þeir sem taka þátt í starfi Ferðafélags barnanna en eru ekki félagar í FÍ eru hvattir til að skrá sig í félagið.

Nú hafa þau ánægjulegu tímamót orðið að ungir þátttakendur í Ferðafélagi barnanna fyrir um áratug síðan, sem voru þá 10 til 12 ára, hafa skráð sig í ferðir eða hópa FÍ og þannig skilað sér áfram inn í starf félagsins sem ungt og efnilegt fólk sem hefur gert útivist og fjallamennsku að sínum lífsstíl.

Áfram er haldið á þeirri braut að styrkja stafræna þjónustu félagsins, meðal annars með bókunarkerfi sem nýlega var tekið í notkun og einnig með nýrri heimasíðu sem lítur dagsins ljós með vorinu. Þar verður t.d. horft til þess að fara af stað með mínar síður og FÍ appið í kjölfarið.

Fararstjórar

Fararstjórar félagsins eru alls um 60 talsins, bæði karlar og konur þar sem kynjahlutfallið er nánast jafnt. Um er að ræða félagsfólk með ástríðu fyrir því að ferðast um landið og býr yfir mikilli reynslu og þekkingu sem þau miðla til þátttakenda í ferðum. Það er einmitt þessi þekking og reynsla sem hefur lengi verið einkennismerki fararstjóra FÍ ásamt því lykilatriði að setja öryggi þátttakanda ávallt á oddinn í öllum ferðum. Gleði og upplifun eru einnig mikilvægir þættir þannig að öll eiga að upplifa sig örugg í ferðum og það á sannarlega að vera gaman líka. Í lengri ferðum eða í gönguhópum myndast margvísleg félagsleg stemming og hver og einn þátttakandi fær tækifæri til að njóta sín. Ferðafélag Íslands er stolt af breiðum hópi fararstjóra sem koma úr ólíkum áttum með mismunandi bakgrunn. Þar er markmiðið að hver fararstjóri geti blómstrað úr frá sínum styrkleikum. Í ferðum þar sem eru margir fararstjórar vinna þeir saman og deila hlutverkum. Heiðrún Meldal ferðafulltrúi og skrifstofa FÍ hefur staðið þétt við bak ferðanefndar og fararstjóra og annast alla daglega umsýslu við ferðir og verkefni. Of langt mál er að telja upp allar ferðir og verkefni félagsins, fararstjóra þeirra og umsjónarfólk, en þeim er öllum þakkað fyrir frábært samstarf.

Vakinn

Á árinu fór félagið í gegnum gæðaúttekt Vakans en félagið innleiddi Vakann í starfsemi sína árið 2015. Gekk sú úttekt mjög vel og náði félagið mjög góðum árangri í viðmiðum úttektarinnar. Út frá reglum Vakans er t.d. ákveðið hversu margir fararstjórar eru í hverri ferð miðað við fjölda þátttakenda. Ferðafélagið hefur einnig áður innleitt málstefnu, umhverfisstefnu, starfsmannastefnu og stefnu í áreitis- og ofbeldismálum.

Síbreytilegt umhverfi

Ferðafélag Íslands starfar í síbreytilegu umhverfi. Oft eru ytri skilyrði ótrygg og óljós og þar hafa forsendur eins og verðbólga, vextir, deilur á vinnumarkaði, stríð, eldgos, veðurfar og fleira áhrif á reksturinn. Í því samhengi er sterkt að félagið er skuldlaust og varfærin stefna stjórnar og stjórnenda þegar kemur að rekstri félagsins sannar gildi sitt, sérstaklega við óhagfelldrar aðstæður í hagkerfinu. Eins er það staðreynd að langvarandi neikvæðar fréttir af stríðsátökum, kjaradeilum, eldgosum og jafnveg leiðindatíð hefur að lokum neikvæð áhrif á fólk og um leið á bókanir í ferðir. Svar félagsins í þessum aðstæðum er að vera stöðugt á tánum og líkt og í fjallgöngu að velja öruggustu og bestu leiðina á toppinn, og/eða snúa frá og reyna aftur seinna.

Skálar

Skálarekstur er umfangsmesti hluti starfsins hjá Ferðafélaginu en félagið á og rekur 15 fjallaskála. Ef við tökum hins vegar heildarfjölda skála saman að þá eru skálar FÍ og deildanna okkar yfir 40 talsins. Sérstakt skálateymi ber hitann og þungann af skálarekstri félagsins. Teymið er vel skipað reynslumiklu starfsfólki, auk þess sem fóstrar skála og sjálfboðaliðar í vinnuferðum leggja skálastarfinu mikilvægt lið. Um 50 skálaverðir eru að störfum fyrir félagið yfir sumartímann. Sigurlaug (Sóla) Jónsdóttir er yfirskálavörður og annast m.a. ráðningar, hefur umsjón með kennslu og þjálfun skálavarða og heldur utan um vaktaplan í skálum. Stefán Jökull Jakobsson er umsjónarmaður skála og fasteigna og leiðir viðhaldsvinnu og nýframkvæmdir félagsins á fjöllum af útsjónarsemi, þekkingu og reynslu. Halldór Hafdal Halldórsson er þjónustustjóri skála og býr einnig yfir mikilli þekkingu og reynslu eftir áratuga starf á fjöllum. Helgi Már Gunnarsson er rekstrarstjóri skála og sér meðal annars um samskipti við ferðaþjónustuaðila, heldur utan um pantanir og vöruúrval í skálum og annast margvísleg skálatengd verkefni. Skálateyminu til halds og trausts voru einnig smiðirnir Gísli Sveinsson og Daníel Guðmundsson sem unnu að margvíslegum endurbótum og lagfæringum á þeim skálasvæðum þar sem þeir störfuðu. Á annað hundrað manns hafa með einum eða öðrum hætti komið að skálastarfi félagsins og er of langt mál að telja þá alla upp eða þau verkefni sem unnin hafa verið. En þau eru sannarlega mörg og starf þeirra sem hafa lagt hönd á plóg er ómetanlegt.

Skálar félagsins opna fyrst í Langadal í Þórsmörk og opna svo yfirleitt um miðjan júní að Fjallabaki. Aðrir skálar, t.d. á Kili og á Sprengisandsleið, opna um miðjan júní eða eftir því sem aðstæður leyfa. Vinnuferð var farin í Hornbjargsvita um miðjan júní og skálaverðir voru mættir að Valgeirsstöðum í Norðurfirði í byrjun júní. Fóstrar skála fara í opnunarferðir í upphafi sumars og lokunarferðir í lok sumars og vinna ómetanlegt starf fyrir félagið í skálarekstrinum. Vinnuferðir í skála eru háðar veðri og vindum, snjóalögum og færð og stundum þarf að fara í fleiri en eina ferð til að klára verkefnin.

Stærsta verkefni félagsins um þessar mundir er endurnýjun og endurbygging Skagfjörðsskála í Langadal. Vinna við undirbúning verkefnisins hefur staðið síðastliðin ár en stjórn ákvað að ganga ekki frá samningum um byggingu skálans fyrr en lóðaleigusamningar væru í höfn. Því er mér það bæði ljúft og skylt að upplýsa ykkur um að núna í febrúar sl. var loks gengið frá og skrifað undir lóðaleigusamninga milli Ferðafélagsins, Rangárþings eystra og Forsætisráðuneytisins. Samningarnir taka til allra þeirra lóða sem Ferðafélagið hefur haft til umráða í Langadal, Húsadal og Emstrum og óhætt er að fullyrða að þetta sé einn af stóru sigrunum í sögu félagsins. Við getum sannarlega verið stolt og þakklát fyrir það að vera treyst fyrir þessum helstu perlum íslenskrar náttúru.

Þessu til viðbótar þá urðu þau miklu tíðindi í síðustu viku að undirritaður var annar mjög mikilvægur samningur, samningur við SG hús um uppbyggingu nýs Skagfjörðsskála. Samkvæmt verkáætlun er stefnt að því að nýi skálinn verði vígður þann 17. júní 2027 eða á 100 ára afmælisári félagsins. Skálinn verður byggður á grunni þess gamla sem verður rifinn. Nýi skálinn verður með sama útliti og sá eldri en innra skipulag hefur verið uppfært með betra eldhúsi, stærri matsal, meira útsýni og salerni í skálanum. Ef allt gengur upp varðandi leyfismál og samninga verður hafist handa við að rífa gamla skálann núna í haust enda verður þá bygging nýs skála vel á veg komin í byggð. Nýr skáli verður fluttur í sex einingum í Langadal og einingarnar settar saman á skömmum tíma. Þannig næst að loka skálanum en veturinn verður síðan nýttur til vinnu innandyra til að hann verði tilbúinn sumarið 2027.

Viðhaldsvinna og endurbætur

Á meðal helstu framkvæmda í viðhaldsvinnu og endurbótum í skálum árið 2025 má nefna nýtt þak á stærri skálann í Nýjadal, nýjan pall og viðgerð á heita- og kaldavatnsbrunni í Landmannalaugum og breytingar í anddyri og gistirými í Álftavatni. Stærsta verkefni sumarsins var þó viðgerð og nýjar lagnir úr heitavatnsbrunni í skála í Hrafntinnuskeri. Á Valgeirsstöðum unnu fóstrar frábært starf en þeir fóru í heilmikla vinnuferð í vor og klæddu restina af efri hæð hússins. Einnig hvíttuðu þeir panil á neðri hæðinni og unnu að lagfæringum á vindskeiðum og klæðningu. Í lokunarferðinni var flísalögn inni á baðherbergi lagfærð og frágangur á klæðningu kláraður. Í Hvanngili vann Gísli Sveinsson skálavörður frábært starf í viðhaldi og endurbótum á skálanum og pússaði og lakkaði meðal annars gólf og vann að margvíslegum endurbótum. Hefur skálinn í Hvanngili ekki litið betur út í mörg ár. Gísli var jafnframt í Langadal í Þórsmörk á vordögum og vann þar mikið og gott starf í margskonar viðhaldi og endurbótum og stórbætti ástand og ásýnd dagsdvalarhússins í Langadal. Af fjölmörgum verkefnum í skálastarfi félagsins skal síðast en ekki síst sagt frá endurbyggingu sæluhúss á Mosfellsheiði sem er verkefni sem FÍ réðist í í kjölfarið á útgáfu árbókar 2019 um Mosfellsheiði. Bjarki Bjarnason, einn höfunda bókarinnar, var ráðinn verkefnastjóri og í kjölfarið voru þeir Örvar og Ævar Aðalsteinssynir ráðnir til að annast verkið og allar verklegar framkvæmdir og unnu að uppbyggingu hússins af einstakri elju og útsjónarsemi. Fjölmargir fleiri komu að byggingu hússins og átti félagið meðal annars í mjög góðu samstarfi við Minjastofnun sem veitti góð ráð og faglegan stuðning. Sæluhúsið var vígt í júní að viðstöddu fjölmenni með viðeigandi dagskrá. Þar með var húsið opnað fyrir öllum ferðalöngum á Mosfellsheiði og var þar mikil umferð ferðafólks síðsumars og fram á haust.

 

Útgáfustarfsemi

Árbók FÍ 2025 - Fuglar og fuglastaðir

Árbók Ferðafélags Íslands kom út 98. árið í röð. Titill bókarinnar er Fuglar og fuglastaðir. Í henni er farinn réttsælis hringur um landið og fjallað um landsvæði eða afmarkaða staði með tilliti til fuglaskoðunar. Í upphafi bókarinnar er umfjöllun um fuglaskoðun sem áhugamál, fuglaljósmyndun og sögu hennar á Íslandi, þátttöku almennings í fuglatengdum vísindum og fjallað um fuglaskoðun á mismunandi árstíðum. Á víð og dreif í bókinni er síðan umfjöllun um ákveðnar fuglategundir eða hópa fugla og er þar komið inn á vistfræði eða líffræði, stöðu fuglastofna og vernd þeirra.

Fuglar eru áberandi lífverur í náttúrunni en um 20 milljónir þeirra leggja leið sína til Íslands á hverju vori til að koma næstu kynslóð á legg. Fjöldi ferðamanna fylgir í kjölfarið enda er fuglaskoðun vinsælt og vaxandi áhugamál um allan heim. Nánast alls staðar má finna fugla en ákveðnir staðir á landinu veita einstaka eða sérstaka upplifun þegar kemur að fuglum og er þeim gerð góð skil í bókinni. Víða á landinu hefur farið fram uppbygging tengd fuglaskoðun, þar sem reist hafa verið fuglaskoðunarskýli eða -hús, og er fjallað um flesta þá staði þar sem slík uppbygging hefur átt sér stað. Er þetta í fyrsta skipti þar sem tekið er saman í bók yfirlit um þá staði á landinu sem veita hvað besta upplifun í fuglaskoðun. Fjöldi korta eru í árbókinni og sá Guðmundur Ó. Ingvarsson um gerð þeirra. Langflestar ljósmyndir í bókinni eru eftir Daníel Bergmann náttúruljósmyndara sem ritaði einnig textann og sá um útgáfuna.

Árbókin er 320 blaðsíður með 410 ljósmyndum og 32 kortum. Í bókarlok er greint frá starfi FÍ og deilda þess á landsbyggðinni á árinu 2024.

Gönguleiðarit - Laugavegur á ensku

Á árinu gaf Ferðafélag Íslands einnig út gönguleiðarit um Laugaveginn á ensku. Um var að ræða þýðingu á hluta árbókar félagsins frá 2021 sem Ólafur Örn Haraldsson skrifaði. Fallegar myndir og frábær kort prýða gönguleiðaritið sem er til sölu í skálum á Laugaveginum og í bókaverslunum. Daníel Bergmann hafði umsjón með útgáfunni.

Félagslíf FÍ er fjölbreytt að vanda og tekur mið af starfi og kjörsviðum félagsins. Það snýst að miklu leiti um vinnuferðir í skála, námskeið um fjallamennsku og öryggismál, mynda- og fræðslukvöld og margt fleira. Félagslífið birtist einnig í starfi nefnda sem og í ferðum.

Deildir

Deildir FÍ eru nú 14 talsins og starfa víða um land. Almennt var mikið og gott starf unnið deildum félagsins en þær starfa í anda FÍ og eftir sömu markmiðum. Deildafundur FÍ er haldinn á tveggja ára fresti. Á vordögum 2025 var slíkur fundur haldinn í Mörkinni 6 og mættu þar fulltrúar deildanna og fóru yfir starfsemina og sameiginleg hagsmunamál.

Fundir

Ferðafélag Íslands og fulltrúar félagsins, þá einkum framkvæmdastjóri og forseti, áttu fjölmarga fundi á árinu með samstarfsaðilum, hagsmunaaðilum, stjórnsýslu og stofnunum um samstarf og sameiginleg verkefni. Þannig var á árinu meðal annars fundað um starf félagsins með ráðherrum, sveitarstjórnum, stofnunum og einkaaðilum og unnið að framgangi ýmissa mála. Auk þess koma margir aðilar daglega á skrifstofuna til skrafs og ráðagerða eða til að vinna að úrlausnum mála sem varða félagsstarfið.

Félagar

Greiðandi félagsmenn FÍ eru nú ríflega 8 þúsund talsins. Félagar sem greiða árgjald njóta umtalsverðra fríðinda og fá mun betra verð í ferðir og skála en þeir sem eru utan félagsins. Árbókin er innifalin í árgjaldinu og þá veitir félagsaðild afslátt hjá fjölmörgum útivistarverslunum og fleiri tengdum aðilum. Félagsskírteinið er nú á rafrænu formi sem félagar fá sent til sín eftir að hafa greitt árgjaldið. Þeir sem greiða ekki árgjaldið í tvö ár eru skráðir úr félaginu.

Skrifstofan

Skrifstofan státar af mikilli starfsánægju og helgun starfsfólks sem býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu sem er félaginu ómetanleg. Eru þeim færðar innilegar þakkir fyrir frábær störf á árinu.

Stjórnin
Stjórn félagsins fundaði alls ellefu sinnum á árinu en auk þess er virkt fjármálateymi sem í sitja forseti, gjaldkeri stjórnar, framkvæmdastjóri og fjármálastjóri félagsins. Fjármálateymið stýrir jafnframt vinnu við fjármögnun nýs Skagfjörðsskála.

Þakkir

Með starfi sínu hefur félagið ávallt sinnt mikilli samfélagslegri ábyrgð sem margir vilja veita stuðning. Fjölmargir aðilar hafa því verið í samstarfi eða átt samfylgd með félaginu á árinu með einum eða öðrum hætti. Það verður þó ekki á neinn hallað með því að segja að starf sjálfboðaliða innan FÍ hefur reynst félaginu ómetanlegt. Það hefur í gegnum tíðina gert félaginu mögulegt að byggja upp aðstöðu víða á hálendinu og í óbyggðum og um leið gert félagsfólki og almenningi mögulegt að ferðast um landið, nýta aðstöðuna og njóta náttúrunnar. Sjálfboðaliðastarf hefur þannig, allt frá stofnun, lagt grunninn að sterkri stöðu félagsins. Eins og komið hefur verið inn á þá leggja í dag enn fjölmargir sjálfboðaliðar Ferðafélaginu lið og má þar til dæmis nefna setu í stjórn, nefndum, fararstjórn, þátttöku í vinnuferðum og skálastarfi, aðkomu að myndakvöldum og námskeiðum og öðrum verkefnum. Sjálfboðaliðastarfið er ómetanlegt og verður seint fullþakkað.

Að lokum er samstarfsaðilum og öllu því góða fólki sem lagt hefur Ferðafélagi Íslands lið á árinu færðar miklar og innilegar þakkir fyrir samstarfið og margvíslegan stuðning við starfsemi félagsins.