Ferðafélag Íslands fagnar 100 ára afmæli félagsins á næsta ári, árið 2027 en félagið var stofnað 27. nóvember 1927. Afmælisnefnd hefur verið að störfum frá apríl 2026 og unnið að undirbúningi fyrir afmælisárið. Lagt er upp með að vinna með allt afmælisárið 2027 og það verði einn viðburður í hverjum mánuði, auk þess sem ferðir og skálar og starfsemin almennt verði tengd afmælisárinu. Afmælisnefnd vill nú leita til félagsfólks eftir góðum hugmyndum að viðburðum á afmælisárinu. Hægt er að senda tillögu á netfangið afmaeli@fi.is
Afmælisfatnaður
Á afmælisárinu 2027 verður félagsfólki boðið upp á að kaupa Rab útivistarfatnað frá Fjallakofanum með afmælismerki félagsins. Boðið verður upp á f´lís peysu, primaloft og skel og hægt að kaupa eina flík eða allar þrjár. Fatnaðurinn er á sérstöku afmælisverði á allra bestu kjörum. Lýsingu á fatnaði, verð og stærðir má sjá nánar með því að smella á hlekkinn:
Þar er einnig hægt að panta.
Fyrir þau sem vilja er hægt að koma á skrifstofu FÍ og máta og panta. Fatnaðurinn er svo greiddur við afhendingu á vordögum 2027