Fornminjar á Njáluslóð

Miðvikudaginn 11. febrúar kl. 20 verður Árni Einarsson líf- og fornleifafræðingur með erindi í sal Ferðafélags Íslands, í Mörkinni 6.



Árni Einarsson líf- og fornvistfræðingur verður með erindi um fornminjar á Njáluslóð og víðar í Rangárvallasýslu.

Árni hefur um langt skeið fengist við ljósmyndun fornminja, fyrst úr flugvél og síðar með drónum, nú síðast í Rangárvallasýslu, sem hefur reynst hreinasta gullnáma hvað það varðar.

Hæst ber forna kornakra og vel varðveitt bæjarstæði frá fornöld með fjölda skálatófta og útihúsa og kerfum girðinga sem benda til umtalsverðrar nautgriparæktar.

Á Keldum var meistaralega útfært áveitukerfi sem veitti Keldnalæk niður um alla Tunguheiði milli Eystri-Rangár og Stokkalækjar og vökvaði fjölda kornakra.
 
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

 

Hægt að smella á takkann fyrir facebook viðburðinn Facebook viðburður