Fræðsluganga um Heiðmörk í dag, 26 maí kl. 18

Fræðsluganga í Heiðmörk í dag kl. 18
Fræðsluganga í Heiðmörk í dag kl. 18

Mánudaginn 26. maí kl 18 verður fræðsluganga um Heiðmörk. Gengið verður frá Elliðavatnsbænum og tekur gangan um tvo klukkutíma. Að viðburðnum standa Skógræktarfélags Reykjavíkur, Landvernd og Ferðafélag Íslands.

Gott aðgengi almennings að grænum svæðum hefur ómetanlegt gildi fyrir lýðheilsu og samfélag. Almannarétturinn tryggir fólki náttúruupplifun, en þekking á náttúrunni styður jafnframt við náttúruvernd.

Heiðmörk er stærsta og fjölsóttasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Þar gefst gestum tækifæri til að kynnast fjölbreyttri náttúru – plöntum, dýralífi, vötnum og jarðmyndunum – í skjólgóðu og aðgengilegu umhverfi rétt við borgarmörkin. Áform eru uppi um að takmarka aðgengi að svæðinu, enda þar vatnsból borgarinnar. Samtökin sem standa að göngunni treysta því að unnt verði að samræma nauðsynlega vernd vatnsbóla og almannarétt um frjálsa för um Heiðmörk – í anda sjálfbærni og lýðræðis. Slíkt hefur tekist annars staðar og getur líka tekist hér.

Gengið verður að þeim svæðum í Heiðmörk sem fyrirhugað er að girða af og loka. Í göngunni verður rætt um þau verðmæti sem í húfi eru.

Hlekk á viðburðinn á Facebook má finna hér.