Það fer vel á því að í ljósi þess að árbók félagsins okkar er helguð fuglum og fuglastöðum að næsti laugardagsmorgunn er helgaður fuglaskoðun í Grafarvogi á vegum FÍ og HÍ.
Núna þegar sumarið er svo sannarlega hafið eru flestir farfuglarnir komnir hingað heim. Margir þeirra hafa þegar hreiðrað um sig í varplandinu en enn eru þó nokkrir sem hafast við í fjörunum og eru á leið á varpstöðvarnar.
Á laugardaginn kemur, þann 17. maí kl. 11 gefst sum sé einstakt tækifæri til að skoða fugla í fjörunni í Grafarvogi með líffræðinemum í Háskóla Íslands og fararstjórum FÍ. Gangan er í samstarfi Háskóla Íslands og Ferðafélags barnanna sem er angi innan Ferðafélags Íslands.
Fuglar heilla okkur menninna flesta svo sannarlega og ekki síst hér á landi þar sem farfuglarnir boða hreinlega vorið og sumarkomuna. Allt í einu lifnar allt við í mónum með söng eins og við heyrum þessa dagana og fjörurnar fyllast af kvakandi fuglum sem eru komnir hingað heim til að undirbúa varp.
Aðrir til að tylla sér um stund og hlaða tankinn áður en þeir fljúga lengra á sínar varpslóðir norðar á jarðarkúlunni.
Fuglaskoðunin tilheyrir verðlaunaverkefni sem kallast „Með fróðleik í fararnesti“ og er það heiti afar viðeigandi enda munu nemendur HÍ ausa úr viskubrunnum sínum.
Gangan hefst við Grafarvogskirkju á laugardag og tekur um tvo tíma á meðan fjarar út í voginum og ætti því göngufólk að sjá æ fleiri fugla koma í fjöruna eftir því sem tímanum vindur fram. Frábært er að hafa með sér sjónauka og nettar fuglaskruddur til að blaða í. Gengið verður með fram Grafarvoginum og augum og sjónaukum beint í fjöruna og út á voginn.
Líffræðinemar munu mæta með sérstaka fuglasjónauka sem afar gagnlegt er að nota og einstaklega skemmtilegt fyrir þau að rýna í slíka gripi sem aldrei hafa gert það, skyndilega er eins og maður hafi fuglina í fingurlengd frá sér. Talandi um sjónauka, orðið kemur úr smiðju þjóðskáldsins og náttúrufræðingsins Jónasar Hallgrímssonar, sem var einmitt mikill fuglaunnandi en tvö af hans þekktustu ljóðum fjalla einmitt um fugla.
Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr sem fer,
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín,
Hér er ort um skógarþröst en í hinu um heiðlóuna.
Snemma lóan litla í
lofti bláu ,,dírrindí"
undir sólu syngur:
,,lofið gæsku gjafarans -
grænar eru sveitir lands,
fagur himinhringur.
Það þarf ekkert að panta fyrir þessa göngu, bara mæta kl. 11 við Grafarvogskirkju og er hægt að leggja bílum í nágrenni kirkjunnar. Fólk er hvatt til að klæða sig eftir veðri.