Góð stemning hefur verið á Laugaveginum undanfarna daga og göngufólk víðs vegar að úr heiminum notið stórbrotins landslags og náttúrufegurðar íslenska hálendisins.
Aðstæður geta verið mjög mismunandi og veður á hálendinu breytist hratt, jafnvel yfir sumarmánuðina.
Við minnum allt göngufólk á að ganga vel um svæðið, halda sig á merktum gönguleiðum þar sem þess er kostur, skilja engan úrgang eftir og sýna náttúrunni og hvert öðru tillitssemi.
Góður undirbúningur er mikilvægur. Göngufólk ætti að undirbúa ferðina vel, vera með viðeigandi fatnað og búnað og kanna nýjustu veðurspá og upplýsingar um aðstæður áður en lagt er af stað. Jafnvel þegar aðstæður eru góðar er mikilvægt að vera viðbúin að skjótt skipast veður í lofti.



