Laugavegurinn er opinn - skálaverðir mættir í alla skála FÍ á Laugaveginum

Vegurinn inn í Landmannalaugar norðan frá Sigöldu, F208, hefur nú verið opnaður fyrir umferð. Athugið að vegurinn um Dómadal er enn lokaður.

 

Töluverður snjór er á gönguleiðinni, en slíkt er algengt í upphafi tímabils. Göngufólk þarf því að vera viðbúið því að ganga hluta leiðarinnar í snjó, einkum á leiðinni á milli Landmannalauga og Álftavatns, en eftir það er enginn snjór á gönguleiðinni. Í miklum hlýindum og þegar snjór bráðnar getur vaxið í ám sem þarf að vaða.

 

Göngufólk er eindregið hvatt til að vera vel undirbúið, fara varlega og fylgjast vel með aðstæðum áður en lagt er af stað og á meðan á ferð stendur.

 

Hægt er að fylgjast með opnun vega á hálendinu á korti á vef Vegagerðarinnar. https://www.vegagerdin.is/

 

Skálaverðir eru einnig komnir til starfa á Valgeirsstöðum í Norðurfirði, Baldvinsskála á Fimmvörðuhálsi og í Hornbjargsvita. Sprengisandsleið er enn lokuð og gert er ráð fyrir að skálaverðir mæti í Nýjadal í lok júní. Skálavörður mætir til starfa í Hvítárnesi á Kili um helgina. Skagfjörðsskáli í Langadal Þórsmörk opnaði í byrjun maí og þar hefur verið töluverð umferð.