Á aðalfundi Ferðafélags Íslands í gærkvöldi var Ólöf Kristín Sívertsen endurkjörin forseti FÍ til næstu þriggja ára. Auk Ólafar voru Salvör Nordal og Tómas Guðbjartsson endurkjörin í stjórn til þriggja ára. Í skýrslu stjórnar sem forseti flutti kom fram að starf Ferðafélags Íslands á árinu 2025 gekk mjög vel og var umfangsmikið á öllum kjörsviðum félagsins. ,, Hlutverk félagsins er að kynna land og náttúru fyrir landsmönnum, greiða götu þeirra og efla lýðheilsu á allan hátt. Það gerum við meðal annars með því að byggja upp fjallaskála og gönguleiðir, standa fyrir fræðslu- og útgáfustarfi, merkingum, vinna að öryggismálum ferðafólks og stuðla að náttúruvernd, “ segir Ólöf Kristín Sívertsen.
Í stjórn félagsins sitja nú: Ólöf Kristín Sívertsen forseti, Elín Björk Jónasdóttir varafoseti, Gestur Pe´tursson gjaldkeri, Gísli Már Gíslason ritari, Salvör Nordal, Hrönn Vilhjálmsdóttir, Tómas Guðbjartsson, Sigurður Ragnarsson og Agnes Ósk Sigmundardóttir