Vegurinn í Landmannalaugar er nú opinn og skálaverðir og landverðir mættir á svæðið. Jafnframt eru skálaverðir FÍ komnir til starfa í Emstrum og Álftavatni á Laugaveginum, auk þess sem þeir eru mættir í Skagfjörðsskála í Langadal í Þórsmörk, þar sem þeir hófu störf í byrjun maí. Veturinn hefur verið snjóléttur á sunnanverðu hálendinu og lítið er um snjó á Laugaveginum nú í upphafi göngutímabilsins. Skálaverðir munu einnig mæta í Hvanngil og Hrafntinnusker í lok vikunnar. Rétt er að hafa í huga að vegurinn inn í Laugar er ekki góður og alls ekki fólksbílafær. Fólksbílar eiga ekki erindi yfir Námskvísl eða Laugalækinn, slíkt getur verið varasamt og skemmt ökutæki.