Útgáfufagnaður Ferðafe´lags Íslands var haldinn í gær. Fjölmargir gestir voru komnir til að fagna ´útgáfu bókarinnar, sérstaklega þau sem hafa komið að vinnu við bókina með einum eða öðrum hætti. Ólöf Krístín Sívertsen forseti FÍ bauð alla velkomna og færði gestum stuttar fréttir af starfi félagsins nú þegar háannatími er handan við hornið. Þá sagði Gísli Már Gíslason formaður ritnefndar frá árbókinni og tilurð hennar og eins frá næstu árbókum en gerðir hafa verið ritsamningar við höfunda til 2030. Daníel Bergmann höfundur bókarinnar sagði frá degi úti í náttúrunni þegar hann er við fuglaljósmyndun og gaf gestum innsýn á þá miklu þolinmæðisvinnu.
Að því loknu var komið að því að sæma einstaklinga gullmerki fe´lagsins . Ólöf Krístín las upp stuttan texta um hvern og einn gullmerkishafa áður viðkomandi var sæmdur merkinu.
Gullmerkishafar FÍ – maí 2025
Gullmerki FÍ er veitt þeim einstaklingum sem hafa með einum eða öðrum hætti unnið einstakt starf á vettvangi Ferðafélagi Íslands, á kjörsviðum þess og eftir stefnu og gildum. Einnig þeim aðilum utan félagsins sem unnið hafa einstakt starf á vettvangi ferðalaga á Íslandi, kynningar á íslenskri náttúru, náttúruverndar og fræðslu og unnið að bættu öryggi ferðamanna og öllu því sem greiðir götu ferðafólks um Ísland.
Þau sem voru sæmd gullmerki FÍ eru:
Einar Skúlason leiðsögumaður, fararstjóri og útivistaráhugamaður, þekktur fyrir stofnun gönguklúbbsins Vesens og vergangs og þróun gönguappsins Wapp. Hann hefur einnig skrifað bækur um gönguleiðir í nágrenni Reykjavíkur og leiðbeint í fjölmörgum ferðum innanlands og erlendis .
Einar stofnaði Vesen og vergang árið 2011, upphaflega til að auðvelda sjálfum sér að ganga þjóðleiðir án þess að þurfa að leita að göngufélögum. Klúbburinn hefur síðan vaxið og dafnað og skipuleggur nú vikulegar göngur, bæði í lokuðum hópum og opnum ferðum, allt árið um kring. Ferðirnar fara fram á suðvesturhorninu og víðar á sumrin, auk ferða erlendis í samvinnu við Mundo. Lögð er áhersla á að versla við heimamenn í nærumhverfi áfangastaða og að virða náttúruna og umhverfið.
Einar hefur skrifað tvær bækur um gönguleiðir í nágrenni Reykjavíkur, annars vegar bókina Átta gönguleiðir í nágrenni Reykjavíkur og hins vegar, Lóa með strá í nefi.
Í bókum sínum og ferðum leggur Einar áherslu á að tengja náttúruna við sögur og þjóðsagnir og stundar nú meistaranám í þjóðfræði með sérstakri áherslu á þjóðleiðir á Íslandi.
Til viðbótar þessu þróaði Einar Wapp - Walking app, gönguleiða app eða smáforrit sem inniheldur safn af GPS-leiðarlýsingum með fróðleik um allt Ísland á góðum kortagrunni . Appið er ætlað bæði göngufólki og leiðsögumönnum og býður upp á upplýsingar um gönguleiðir, örnefni, náttúru og sögu staða, margar hverjar gjaldfrjálsar.
Steinunn Leifsdóttir er reyndur fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands (FÍ) og hefur verið nátengd félaginu allt frá barnæsku. Hún varð hluti af fararstjórahópi félagsins rétt eftir tvítugt og hefur síðan þá tekið þátt í fjölbreyttum ferðum og verkefnum. Steinunn er menntaður íþróttafræðingur, sem hefur nýst henni einstaklega vel í fararstjórastarfi hennar. Hún hefur einnig tekið þátt í ýmsum göngum og hreyfiverkefnum í gegnum tíðina og kom þar á meðal á fót göngu- og heilsuverkefninu „Biggest Winner“ árið 2014 og starfaði sem þjálfari og fararstjóri í því verkefni.
Steinunn hefur einnig leitt þjóðhátíðargönguna yfir Leggjabrjót, sem fer fram á 17. júní ár hvert, og tók virkan þátt í Lýðheilsugöngum félagsins sem voru hluti af 90 ára afmæli þess. Þar leiddi hún nokkrar göngur þar sem sérstök áhersla var lögð á vellíðan og hreyfingu, auk þess sem hún deildi þekkingu sinni á staðháttum.
Steinunn hefur unnið ötullega að því að tryggja að ferðir FÍ uppfylli öryggis- og umhverfisviðmið. Þá hefur hún tekið þátt í starfi Ferðafélags barnanna, haft umsjón með FÍ Kvennakrafti ásamt Agnesi Ósk og farið í margar stakar sumarleyfisferðir, m.a. Laugaveginn, Fimmvörðuháls og á Strandir og Hornstrandir. Einnig hefur Steinunn haft umsjón með FÍ Þjóðleiðum ásamt Agnesi, en verkefnið hefur eins og svo mörg önnur verkefni FÍ, notið mikilla vinsælda.
Steinunn hefur verið tengd Ferðafélaginu allt frá barnæsku og byrjaði að ganga Laugaveginn og Fimmvörðuháls með foreldrum sínum snemma. Hún hefur því djúpa persónulega tengingu við náttúruna og fjöllin sem hún leiðir ferðir um. Steinunn er einnig virkur sjálfboðaliði innan félagsins og hefur setið í nefndum á vegum félagsins. Þá starfaði Steinunn um tíma á skrifstofu FÍ.
Sigurlaug Jónsdóttir, einnig þekkt sem Sóla, er yfirskálavörður hjá Ferðafélagi Íslands (FÍ) og hefur stundað útivist og verið virkur þátttakandi í félaginu í áratugi.
Sóla hóf störf hjá FÍ árið 2007 sem skálavörður í Hvanngili og hefur síðan þá starfað í ýmsum skálum félagsins, þar á meðal í Nýjadal, þar sem hún var oft í skálavörslu fram í september. Sóla starfaði sem skálavörður í 11 ár samfellt, öll sumur og fram á haust eftir aðstæðum. Hún er menntaður myndhöggvari en lauk leiðsögumannaprófi árið 2009, síðar landvarðarréttindum og er nú einnig orðin langferðabílstjóri. Sóla starfaði um tíma sem landvörður á Þingvöllum, elskar náttúru Íslands og vill ávallt að náttúran njóti vafans í samskiptum manns og náttúru. Frá ársbyrjun 2023 hefur Sóla starfað á skrifstofu FÍ sem yfirskálavörður og sér um allt sem við kemur skálavörðunum.
Sóla ólst upp með fjölskyldu sinni á hálendi Íslands, þar sem hún þróaði ást á náttúrunni sem hefur fylgt henni æ síðan. Hún nýtur þess að ferðast um hálendið með hundinum sínum, Heklu, og telur það vera sitt uppáhalds leiksvæði.
Í ferðum sínum lumar Sóla ávallt á súkkulaði í bakpokanum og ósk um að geta hellt uppá sterkt kaffi, því þá verður dagurinn enn betri.
Gísli Einarsson er ákaflega fjölhæfur einstaklingur sem hefur áralanga reynslu í fjölmiðlum, útivist og ferðamálum. Hann er fæddur árið 1967 og ólst upp í Lundi í Lundarreykjadal í Borgarfirði, en býr nú í Borgarnesi.
Gísli hefur starfað við fjölmiðla í mörg ár og er dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu eins og flestir þekkja. Hann er umsjónarmaður þáttarins Landinn, sem fjallar um mannlífið víðs vegar um landið. Í þáttunum leitar Gísli uppi áhugaverða staði og fólk, bæði í borg og sveit. Gísli hefur einnig starfað sem fararstjóri fyrir Bændaferðir, þar sem hann hefur leitt ferðir til Noregs, Bretlandseyja, Austurríkis og Þýskalands. Þátttakendur hafa lýst honum sem afar skemmtilegum leiðsögumanni sem hafi þann hæfileika að geta miðlað miklum fróðleik í bland við glens og gaman.
Gísli er jafnframt forseti Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs, sem var stofnað árið 2021. Félagið hefur staðið fyrir ferðum um allt Borgarfjarðarhérað og auk þess vinnur auk þess að uppbyggingu og fræðslu fyrir útivistarfólk á svæðinu. Sem dæmi um eintaka ferðir má nefna sumarleyfisferðir um Vatnaleiðina og í Jafnaskarðsskógi við Hreðavatn, þar sem fjölmargir þátttakendur hafa tekið þátt, og fleiri dagsferðir.
Árið 2023 frumsýndi Gísli uppistandssýninguna Ferðasaga Gísla Einarssonar (en hvorki Eggerts né Bjarna), þar sem hann gerði grín að landanum í bland við heiðarlegar tilraunir til að leiðrétta niðurstöður Eggerts og Bjarna úr Ferðabók þeirra frá 1772. Allur ágóði lokasýningarinnar sem haldin var á Svalbarðseyri og var langfjölmennasta sýningin rann óskiptur til 11 ára drengs frá Akureyri sem haldinn er ólæknandi hrörnunarsjúkdómi.
Það er óumdeilt að Gísli hefur mikinn áhuga á útivist og fjallgöngum enda hefur hann tekið að sér staðarleiðsagnir fyrir hópa um Vesturland og hefur verið virkur þátttakandi í útivistarlífi Borgarfjarðar.
Þorgerður Sigurðardóttir er formaður Ferðafélags Akureyrar (FFA) og hefur verið virkur þátttakandi í útivistarlífi Norðurlands í áratugi. Hún hefur mikla ástríðu fyrir náttúru landsins, útivist og ferðalögum, og hefur tekið þátt í fjölmörgum ferðum og verkefnum sem tengjast þessum áhugamálum, bæði innanlands og erlendis.
Þorgerður hefur meðal annars tekið þátt í skipulagningu og framkvæmd ferða fyrir FFA. Meðal þeirra verkefna sem hún hefur skipulagt eru Gönguvikan 2023, þar sem hún var fararstjóri í göngu frá Gásir að Skipalóni, þar sem þátttakendur skoðuðu fornleifar og rýndu í sögu svæðisins . Hún lét ekki sitt eftir liggja á Stóra-plokkdeginum í fyrra þar sem hún tók þátt í hreinsunarverkefni við Krossanesborgir í samstarfi við Akureyrarbæ . Hún hefur einnig verið virk í barna- og fjölskyldustarfi innan Ferðafélags Akureyrar. Þessi verkefni endurspegla vel skuldbindingu hennar við náttúruvernd og samfélagslega ábyrgð.
Ferðafélag Akureyrar er deild í Ferðafélagi Íslands og hefur félagið verið virkt í útivistarlífi Norðurlands síðan 1936. Félagið skipuleggur árlega 50–60 ferðir og rekur sjö skála á Norðurlandi . Þorgerður hefur síðustu ár verið leiðandi í þessari starfsemi og hefur með þátttöku sinni í ferðum og verkefnum stuðlað að aukinni útivist og náttúruvernd á svæðinu.
Þorgerður gat því miður ekki verið viðstödd til að veita gullmerkinu viðtöku en sonur hennar, Ólafur Haukur Árnason, veitti því viðtöku fyrir hennar hönd.
Kristján Már Unnarsson er einn af reynslumestu fréttamönnum landsins og hefur starfað við fjölmiðla í yfir 40 ár. Hann er þekktur fyrir djúpa þekkingu sína á náttúru Íslands og hefur meðal annars fjallað um eldgos og jarðskjálfta í beinum útsendingum. Hann hefur einnig verið umsjónarmaður þáttarins „Um land allt“ á Stöð 2, þar sem hann heimsækir áhugavert fólk og staði víðs vegar um landið.
Í þessum þáttum hefur Kristján Már lagt áherslu á að kynna náttúru landsins og menningu með áherslu á staðbundna sérstöðu. Kristján Már hefur einnig haft umsjón með þáttaröðinni Landnemarnir sem fjalla um landnámssöguna og snerta þannig bæði sögu og náttúru landsins og einstakra héraða. Landnemarnir hafa notið mikilla vinsælda.
Í þáttunum hefur einnig verið fjallað um samfélagsmál og áhugaverða staði og hefur meðal annars heimsótt fyrirtæki sem nýta náttúruauðlindir á sjálfbæran hátt,
Kristján Már hefur með þáttum sínum lagt sitt af mörkum til að kynna náttúru og menningu Íslands fyrir almenningi og hefur þannig verið virkur þátttakandi í útivistarlífi landsins.