Síðustu dagar hafa verið einstaklega fallegir í Þórsmörk. Eftir þokutíð hefur sólin loksins látið sjá sig og mikil stemning skapast meðal gesta á öllum aldri, bæði Íslendinga og erlendra ferðamanna.
Skálaverðir lýsa aðstæðum sem algjörri draumaparadís.
Lítið er í ánum um þessar mundir og gott vað yfir Krossá. Hvanná er gróf að venju og Steinsholtsá hefur verið óvenju gróf í botninn að undanförnu.



