Aðstæður í fjalllendi og óbyggðum eru meira krefjandi en í byggð
Fjallamennska – öryggisreglur
Fleiri og fleiri stunda nú fjallamennsku allt árið um kring og þar með vetrarfjallamennsku. Áður fyrr var það einkum björgunarsveitarfólk sem stundaði vetrarfjallamennsku en Ferðafélag Íslands og fleiri útivistarfélög og gönguklúbbar bjóða nú upp á dagskrá gönguferða yfir veturinn. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands skrifar hér um öryggi á fjöllum.
Mikilvægt er fyrir göngufólk sem stundar fjallamennsku að huga vel að öryggismálum og tryggja öryggi í ferðum eins og hægt er. Ferðafélag Íslands hefur í samvinnu við VÍS unnið áhættumat fyrir gönguleiðir og er þeirri vinnu haldið áfram. Áhættumat gönguleiða má finna á heimasíðu Ferðafélags Íslands, undir gönguleiðir.
Helstu áhættur í fyrir göngufólksem stundar fjallamennsku eru þessar:
- Hætta á að hrasa
- Hætta á að renna í fjalllendi í bleytu
- Hætta á að hrapa fram af fjallsbrúnum / klettum
- Hætta á að villast
- Hætta á að lenda í óveðri
- Hætta á að verða blautur – kaldur verða fyrir ofkælingu – krókna
- Hætta á að lenda í erfiðleikum þegar ár eru þveraðar
- Hætta á að lenda í steinkasti / aurskriðum
- Hætta á að verða sambandslaus
- Hætta á að lenda í vandræðum vegna þess að maður er vanbúinn / illa búinn
- Hætta á að vanmeta aðstæður / ofmeta sjálfan sig / verða uppgefinn
- Hætta á ofþornun og næringarleysi.
- Hætta á að komast ekki í skjól.
Hér hafa verið nefndar aðstæður sem göngufólk getur lent í þegar það stundar fjallamennsku. Þetta er ekki tæmandi listi yfir hættulegar aðstæður. Aðstæður á fjöllum eru yfirleitt meira krefjandi en í byggð.

Góður undirbúningur grundvallaratriði
Mikilvægt er að undirbúa sig vandlega fyrir hverja ferð og meðal annars:
- Afla upplýsinga um aðstæður á leiðinni, t.d. aurbleytu, vatnsföll eða annað og ekki fara í ferðina nema aðstæður séu viðráðanlegar.
- Fylgjast með veðurspá fyrir ferð – sé veðurspá slæm og gert ráð fyrir meira vindhraða en 16 metrum á sekúndu er rétt á fresta ferð eða breyta. Rétt er að hafa í huga að veður breytist hér á landi á örskammri stundu. Þá er veður til fjalla yfirleitt mun verra en í byggð.
- Vanda leiðaval og forðast krefjandi aðstæður. Gott er að kanna spár á vedur.is
- Mikilvægt er að fara yfir búnað sem þarf til hverrar ferðar miðað við aðstæður og tryggja að allir séu rétt búnir.
- Ef farið er í ferð, hvort að sumri, vetri eða vori þar sem von getur verið á snjóflóðahættu er nauðsynlegt að hafa skóflu, snjóflóðastöng og snjóflóðaýli og þekkingu til að nota slíkan búnað.

Fatnaður skiptir máli
Nauðsynlegur búnaður í allar sumarleyfisferðir eru: sokkar og nærfatnaður úr ull er eða gerviefnum, gott millilag t.d. flís eða stretch eða ull og góður hlífðarfatnaður, jakki og buxur, vind og vatnsheldur. Þá er nauðsynlegt að vera með húfu og vettlinga.
Góðir gönguskór eru nauðsynlegir þegar ferðast er til fjalla, helst háir, með góðri styrkingu yfir ökla og grófum botni. Legghlífar er oft gott að hafa.
ef gengið er á jökla að sumarlagi
Ef leið liggur um jökla, brattlendi eða klettabelti þar sem enn er snjór að sumarlagi er nauðsynlegt að hafa ísöxi og kunnáttu í að stoppa sig með henni ef fólk rennur að stað. Ísbrodda (jöklabrodda) þarf að nota ef aðstæður í brekkum eru þannig að hætta er á að renna af stað ef fólk dettur, brekkur eru með hörðum snjó eða ís, grjót eða klettar eru fyrir neðan. Ef farið er á ísbrodda þá þarf viðkomandi alltaf að hafa ísexi í hendi og kunna að nota hana.
- Fjallalínur og öryggisbelti getur þurft að nota á erfiðum gönguleiðum, einnig að sumarlagi.
- Ef gengið er á jökla skal ávallt nota öryggisbelti, fjallalínur sem og hafa ísbrodda og ísexi til taks.
- Mikilvægt er að hafa gps tæki og kunnáttu til að vinna með tækið.
- Áttavita og kort þarf að hafa meðferðis og kunnáttu í notkun.
- Göngustafir eru góðir og veita stuðning í ákveðnum aðstæðum.
- Nauðsynlegt er að hafa hlaðinn gsm síma með í ferð.
- Aldrei skal vera einn á ferð í óbyggðum / fjalllendi.
- Láttu vita af ferðum þínum og áætlaða heimkomu. Gott er að nota safetravel.is
- Mikilvægt er að hafa bakpoka með auka hlífðarfatnaði t.d. sokkar, höfuðbuff, vettlingar. peysa eða dúnúlpa, sjúkrapoka, nestisbita vatn og heitt á brúsa.

Blaut föt og kuldi hættuleg blanda
Gott er að kaldstarta sem kallað er, þ.e. vera ekki of mikið klæddur í upphafi og hafa frekar fatnað í bakpoka. Göngumaður er mjög fljótur að ganga sér til hita en um leið þarf að varast að svitna. Blaut föt og kuldi eru hættuleg göngumanni. Þess vegna er mikilvægt að vera í fatnaði sem andar eða tekur ekki í sig raka. Gott er að stoppa eftir 15 – 20 min. göngu og hagræða fatnaði eftir þörfum.
Göngur í óbyggðum og fjallaferðir að eru í eðli sínu meira krefjandi en gönguferðir í byggð. Skoða þarf veðurspár og huga að aðstæðum. Mikilvægt er að lesa og fræðast um gönguferðir og fjallamennsku og auka þannig þekkingu sína. Eins er gott að læra af reyndari fjallamönnum og byggja upp reynslu sína og þekkingu.
Ferðafélag Íslands og fleiri aðilar bjóða upp á námskeið í fjallamennsku sem fræðast má um á fi.is