Viltu skoða skordýr í Elliðaárdal?

Viltu skoða skordýr í Elliðaárdal?

 

Viltu skoða pöddur í algjöru návígi? Ef svo er þá skaltu endilega grípa tækifærið með Háskóla Íslands og Ferðafélagi Íslands í árvissum viðburði í Elliðaárdal á morgun, miðvikudaginn 11. júní. Gangan hefst kl. 18. Viðburðurinn er í verðlaunaröð sem kallast Með fróðleik í fararnesti og er samstarfsverkefni FÍ og HÍ sem hófst á aldarafmæli skólans.

 

Pödduskoðun er einn allra vinsælasti viðburðurinn í fróðleiksröðinni þar sem fjölskyldufólk safnast saman við gömlu rafstöðina í Elliðaárdal og fær hjálp við að greina og skoða pöddur í smásjám. Vísindafólk HÍ mætir með smásjárnar, tól og tæki en krakkar og fullorðnir er hvött til að koma með stækkunargler sem gerir þetta vísindaævintýri miklu skemmtilegra.

Skoða ferð

 

Getur padda verið falleg?

Þótt mörgum finnist skordýr afar ógeðfelld þá er Gísli Már Gíslason, leiðsögumaður hjá Ferðafélagi Íslands og prófessor emeritus í líffræði við Háskóla Íslands, á allt öðru máli. Hann er einn helsti sérfræðingur landsins á sviði lífsins í laufinu og vatninu.

 

Gísli Már mun leiða gönguna ásamt Ólafi Patrik Ólafssyni, kennara í líffræði við Háskóla Íslands, eins og undanfarin ár. Þeir verða studdir af fjölmörgum nemum í líffræði við HÍ.

 

Þeir Gísli Már og Ólfur Patrick vita báðir að skordýr eru örlítið skyld manninum þótt við getum nú seint sagt að hrossaflugan sé systir okkar.

 

„Menn og skordýr eiga sameiginlegan forföður í fyrndinni eða fyrir 550 milljónum ára svo skyldleikinn er nú frekar lítill,“ segir Gísli Már og hlær en bætir því við að það sé engu að síður margt sem geri skordýr afar heillandi.

 

„Í skjótu bragði get ég nefnt líkamsbyggingu skordýra, hæfni þeirra til að lifa í þurrlendi, þróun flugs og fjölda tegunda og fjölbreytileikann, sem gerir þau hæfust allra dýra til að lifa í öllum þurrlendisvistkerfum, frá miðbaug að pólum,“ segir þessi gangandi alfræðiorðabók en Gísli Már mun miðla fróðleik til fólks í Elliðaárdalnum á morgun, 11. júní milli kl. 18 og 19:30. Með Gísla Má og Ólafi Patrick verður auk þess fólk frá Ferðafélagi barnanna sem er angi innan FÍ.

 

Gísli segir að mörg skordýr séu auk þess mjög falleg og það útskýri söfnun á skrautlegum skordýrum sem sett voru áður fyrr í ramma til sýnis. „Auk þess eru þetta frábær dýr til að gera tilraunir með vegna skamms lífsferils, flestra aðeins eitt ár eða skemmra.“

Margar nýjar tegundir

Fjölmargar tegundir skodýra hafa bæst við fánu Íslands á undanförnum árum og það kann vel að vera að nýir landnemar verði uppgötvaðir í Elliðaárdalnum á morgun. Á tímum loftslagsbreytinga hefur náttúran tekið ýmsum breytingum og ýmis ný skordýr eiga betri möguleika á að þrífast hér en framan af síðustu öld.

 

„Almennt má segja að tegundir sem eru í loftslagi hlýrra en var á Íslandi um miðja 20. öldina hafi komið og e.t.v. hafi kulsæknar tegundir horfið þó að við vitum það ekki,“ segir Gísli Már.

 

„Útbreiðsla tegunda á Íslandi hefur einnig færst til og tegundir eru að færa sig norðar í landið. Margir kannast við asparglyttu, sem er bjalla sem herjar á aspir og víðitegundir og líka birkikembu, en lirfur þess fiðrildis herja á birki og fleiri tegundir runnaplantna. Allt eru þetta nýjar tegundir. Aðrar tegundir, eins og ertuygla hefur aukið útbreiðslu sína og sækir nú norðar í landið.“

 

Gísli Már segir að án skordýra værum við ekki á jörðinni því svo er líf okkar háð þeim.

 

„Skordýr eru mikilvæg til alls konar rannsókna og síðast en ekki síst eru þau framtíðarprótein til manneldis. Býflugur safna líka sykri sem verður að hunangi í maga þeirra sem þær gubba síðan í hólf í búunum, sem er útbýtt til lirfanna sem fæða. Við borðum þetta líka,“ segir Gísli Már.

 

Hann segir að líklega hafi um 300 til 400 nýjar tegundir numið hér land á seinustu 30 árum. „Mörg þeirra eru félagsskordýr. Þetta eru alls konar tegundir sem tengjast innflutningi plantna eða hafa borist með vindum frá Evrópu og fundið sér búsvæði á Íslandi. Má þar nefna geitungategundir og humlur, þó að algengustu tegundir geitunga hafi verið komnar nokkuð fyrr, eða fyrir 1980. Einnig vatnaskordýr, t.d. ein vorflugutegund og hið fræga lúsmý.“

 

Er lúsmýið óvinsælasta skordýr Íslandssögunnar?

Lúsmýið er tegund sem enginn elskar enda bítur hún fólk og margir verða illa fyrir barðinu á henni. Þótt við höfum fengið fjölda nýrra tegunda á síðustu árum og áratugum höfum við verið blessunarlega laus við sumt það sem angrar mjög nágrannaþjóðir okkar.

 

„Þar nefni ég fyrst og fremst moskítoflugur, en það eru um 30 til 40 tegundir þeirra á Norðurlöndum og Bretlandi,“ segir Gísli Már en bætir svo við. „Þær munu samt einhvern tímann hafa tækifæri til að setjast hér að.“

 

Hann segir að við séum líka heppin að hafa ekki kleggja hér. „Kleggi, sem er ein sársaukamesta tvívængjan sem bítur spendýr er ekki hér blessunarlega, en hún er algeng á Norðurlöndum og í Evrópu.“

 

Skordýr afar mikilvæg í lífríkinu

Burtséð frá öllu öðru þá eru skordýr gríðarlega mikilvæg í náttúrunni. Frjóvgun allra blómplantna er t.d. gerð af skordýrum og þar með frjóvgun margra nytjaplantna og ávaxta.

 

„Án skordýra værum við ekki á jörðinni því svo er líf okkar háð þeim. Þau eru t.d. sorpeyðingartæki okkar, fjarlægja og éta plöntur og dýr sem drepast á skömmum tíma. Skordýr eru mikilvæg til alls konar rannsókna og síðast en ekki síst eru þau framtíðarprótein til manneldis. Býflugur safna líka sykri sem verður að hunangi í maga

þeirra sem þær gubba síðan í hólf í búunum, sem er útbýtt til lirfanna sem fæða. Við borðum þetta líka.“

 

Þeir Gísli Már og Ólafur Patrick lofa báðir fjöri og fróðleik í árvissri skordýraskoðun í Elliðaárdal. Þeir hvetja fólk til að taka með stækkunargler sem er ómissandi þarfaþing við skordýraskoðun. Ekki er verra að vera í vaðstígvélum.

 

Ef þú vilt sjá pöddur í návígi þá er þetta tækifærið sem þú mátt alls ekki missa af. Það þarf ekkert að skrá sig, bara að mæta. Það eru næg bílastæði við rafstöðina.