Ferðafélag Íslands byggir nýjan Skagfjörðsskála

Ferðafélag Íslands byggir nýjan Skagfjörðsskála í Langadal í Þórsmörk

Ferðafélag Íslands vinnur nú að byggingu nýs Skagfjörðsskála í Langadal í Þórsmörk, einum fegursta og ástsælasta útivistarstað landsins. Með verkefninu viljum við tryggja að komandi kynslóðir geti áfram notið einstakrar náttúru Þórsmerkur og upplifað þá fjallarómantík sem hefur verið leiðarljós félagsins frá stofnun þess árið 1927.

Nýi skálinn er reistur á grunni hins gamla með sama útliti og gamli góði Skagfjörðsskáli. Áfram verður gist í svefnpokaplássum en um leið er þó komið á móts við óskir nútímaferðamannsins. Salerni eru í skálanum, stærra og betra eldhús, stærri og betri matsalur, kæligeymsla, stærri gluggar og meira útsýni. Auk þess verður þriggja fasa rafmagn í skálanum.

Ljósmynd Vilhelm Gunnarsson       Ljósmynd Vilhelm Gunnarsson

Skálinn var byggður af SG Húsum á Selfossi og var fluttur í Langadal 21. október sl. og einingar settar saman. Gengu flutningur, hífingar og samsetning eininga mjög vel fyrir sig, þrátt fyrir að um vegleysur og jökulár væri að fara. Mikil vinna við uppbyggingu Skagfjörðsskála er eftir og heldur hún áfram fram á næsta vor.

 

 
 
Bygging Skagfjörðsskála er eitt stærsta einstaka verkefnið í 100 ára sögu Ferðafélags Íslands. Stjórn félagsins hefur kappkostað að ná sem bestum samningum við verktaka og unnið að verkefninu með skynsemi og hagræðingu að leiðarljósi í allri framkvæmd. Um leið hefur verið leitað allra leiða við fjármögnun og stuðning við byggingu hins nýja skála. Markmið stjórnar FÍ hefur verið að ná að fjármagna skálabygginguna með styrkjum og stuðningi.

Ein leið í þeirri vinnu er hópfjármögnun. Því leitum við nú til félagsfólks og velunnara félagsins með ósk um stuðning. Það er von okkar að þú sjáir þér fært að styrkja skálauppbygginguna (sjá neðar á síðu). Með sameiginlegu átaki getum við byggt skála sem verður mikilvægur áfangastaður ferðafólks og verðmætur hluti af sögu íslenskrar útivistar um ókomin ár.

Allir sem styrkja uppbyggingu á nýjum Skagfjörðsskála geta fengið nafn sitt skráð á lista velunnara Skagfjörðsskála.

Nýr Skagfjörðsskáli verður vígður á 100 ára afmæli félagsins, vorið 2027, og verður öllu félagsfólki boðið í vígsluathöfnina.

Með kærri ferðafélagskveðju,

Ólöf Kristín Sívertsen 
Forseti Ferðafélags Íslands

Páll Guðmundsson
Framkvæmdastjóri Ferðafélgs Íslands

Ljósmynd Vilhelm Gunnarsson

Ljósmyndir eru eftir Vilhelm Gunnarsson