Flestir Íslendingar sem huga að ferðalögum, líta að lágmarki til veðurs , þó ekki sé annað en að fara á veður, belging eða bliku, en fjöldi annarra gagnlegra upplýsinga er að finna á netinu.
Farið verður yfir kortavefsjár, loftmyndir, samtíma gervihnattamyndir, vefmyndavélar, rennslismælingar Vatnamælingar og fleira sem hægt er að nota við undirbúning ferða.
M.a. verður farið um eftirfarandi vefsetur:
https://umferdin.is/myndavelar
https://www.map.is/base/, sjá t.d. os og lh
https://liv.is/myndavelar/ Vefmyndavélar
https://vmkerfi.vedur.is/ Vatnamælingakerfið
https://safetravel.is/is/outdoors/crevasse-maps/ Ferðaupplýsingar á jökil
https://vefsja.iskort.is/ Jökulsprungur og fl.
https://gottvedur.is/snjoflod/ Snjóflóðahætta
https://browser.dataspace.copernicus.eu/ Samtíma gervihnattamyndir
Og spurningunum sem við getum vonandi svarað
Hvenær og hvar vöðum við yfir ár?
Eru þarna götur og slóðar?
Komumst við yfir á snjóbrúm?
Er tímabært að skella sér á Hornstrandir?
Er nægur snjór (skíði/jeppar/sleðar) og hvernig snjór?
Eru sprungur, katlar og svelgir opin og eitthvað að frétta ofan af jöklum?
Er rétti tíminn að skella sér á fjallaskíðin?
Haukur Eggertsson er félagi í Ferðafélagi Íslands síðan á síðustu öld og hefur ferðast vítt um landið á fæti, hjóli, skíðum, hestum og jeppum og farið í fjölda lengri hjólreiðaferða erlendis. Hann hefur starfað með Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík síðan 2007, á sæti í stjórn Landssamtaka hjólreiðamanna, Samtaka útivistarfélaga og í svæðisráði vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.

