Gamla góða sálin í nýjum Skagfjörðsskála

Það eru ekki margar byggingar sem vinna sér það hreinlega inn að verða hluti af ferðasögu heillar þjóðar, en Skagfjörðsskáli Ferðafélags Íslands í Langadal er svo sannarlega ein þeirra.

Frá árinu 1954 hefur skálinn tekið á móti kynslóðum ferðafólks í hjarta Þórsmerkur. Þar hafa blautir gönguskór hvílst í röðum, bakpokar hallað sér upp að veggjum og þreyttir ferðalangar sest saman yfir heitum mat eftir langan dag á fjöllum. Fjölmargir félagar í Ferðafélaginu og raunar fjöldi landsmanna eiga magnaðar minningar úr skálanum, sem hefur þjónað hlutverki sínu dyggilega í 72 ár.

Þar hafa verið sagðar sögur, fólk hlegið og ný vináttubönd myndast sem gjarnan hafa enst ævina alla. Þar hefur fólk líka sungið saman svo þakið hefur jafnvel lyfst frá útveggjunum – örugglega ekki síst þegar sjálft Þórsmerkurljóðið eftir Sigurð Þórarinsson, jarðfræðing og félagsmann í Ferðafélagi Íslands, hefur verið sungið:

„Birkið ilmaði, allt var hljótt,
yfir oss hvelfdist stjörnunótt.“

Nýja þakið verður án vafa vel fest, enda má gera ráð fyrir að bæði ný og gömul Þórsmerkurlög verði sungin af slíkum krafti að áfram reyni vel á festingarnar.

 

Gamli skálinn víkur – andinn lifir áfram

En nú er komið að næsta kafla í sögu Skagfjörðsskála og um leið í sögu FÍ og ferðaþjóðarinnar allrar.

„Við vinnum nú að endurnýjun af fullum krafti og nýr Skagfjörðsskáli er smíðaður í sex einingum í byggð,“ segir Ólöf Kristín Sívertsen, forseti Ferðafélags Íslands. „Einingarnar verða síðan fluttar inn í Langadal og settar saman á grunni gamla skálans. Framkvæmdir á staðnum eiga að hefjast núna 12. september og ef allt gengur samkvæmt áætlun verður nýi skálinn risinn í október. Þá heldur áfram vinna innandyra, bæði fram á haust og svo næsta vor.

Nýr Skagfjörðsskáli verður reistur á sama grunni – í bókstaflegri og táknrænni merkingu. Forsetinn segir að það sé enda alls ekki markmiðið að kveðja gamla Skagfjörðsskála heldur að halda áfram með það besta úr sögu hans, sem fái rými innan nýju veggjanna og undir nýju þaki.

„Gamli skálinn hverfur því ekki alveg. Formið, andinn og minningarnar fylgja með inn í nýja húsið. Nýi skálinn verður með sama kunnuglega ytra útliti, en aðstaðan innandyra verður færð til nútímans,“ segir Ólöf Kristín.

Það þýðir ekki endilega að allt verði stafrænt og knúið með öppum í farsímum. Nei, alls ekki. Eldhúsið verður hins vegar stærra og betra, matsalurinn rýmri, útsýnið meira og salerni verða inni í skálanum.

Og talandi um útsýnið. Það verður bara Þórsmörk sjálf. Hún er ekki aðeins uppspretta ljóða og söngva okkar Íslendinga heldur staður sem kemur okkur sífellt á óvart. Sama hversu oft við höfum séð Þórsmörk á myndum eða farið þangað til að njóta hennar, þá er einhvern veginn eins og við séum alltaf að sjá hana í allra fyrsta sinn. Víðáttan, birkiskógurinn, árnar, gljúfrin og jöklarnir mynda þennan heim sem er miklu stærri en maður átti von á en samt aldrei of stór til þess að maður taki hann ekki með sér heim.

 

Fjallarómantíkin á sínum helga heimavelli

Forseti FÍ segir að fjallarómantíkin eigi svo sannarlega að fá að halda sér í nýja skálanum.

„Áfram verður gist í kojum í svefnpokum, ferðafólk deilir rými og sest saman við matarborðið. Það er einmitt þessi nálægð og einfalda samvera sem gerir dvöl í fjallaskálum Ferðafélagsins svo einstaka. Skálinn er ekki hótel og á alls ekki að vera það. Hann er skjól, áningarstaður og samkomustaður í einu fegursta göngulandi okkar Íslendinga,“ segir forsetinn.

Við smíðina verður gætt að öllu sem lýtur að vernd náttúru og lífríkis. Það þarf enda ekkert að fjölyrða um að staðsetningin sé einstök og Þórsmörk ein af sameiginlegum náttúruperlum þjóðarinnar. Þú ert líklega löngu búin að finna það út – með lestrinum hér á undan – en fegurð Þórsmerkur verður aldrei of oft tíunduð.

Skagfjörðsskáli stendur í mynni Langadals, skammt frá Krossá og með Valahnúk svona nánast sér við hlið. Þar ljúka margir göngu sinni um Laugaveginn og þaðan halda aðrir áfram yfir Fimmvörðuháls. Fyrir suma er Langidalur endastöð eftir langt ferðalag, fyrir aðra upphafið að nýju ævintýri.

„Stefnt er að því að vígja skálann 17. júní 2027, á 100 ára afmælisári Ferðafélags Íslands. Það verður viðeigandi leið til að fagna heilli öld af ferðagleði, sjálfboðastarfi og ást á íslenskri náttúru: með nýju húsi sem hefur gamla hjartsláttinn,“ segir Ólöf Kristín forseti FÍ.