Gítarinn frá grunni - 4. vikna námskeið. 6. – 27. október

Gítarnámskeið Ferðafélags Íslands og gitarskolinn.is hafa slegið í gegn. Í fyrstu var boðið upp á grunnnámskeið en vegna óska þátttakenda var síðan bætt við framhaldsnámskeiði og fjölmörg tóku þátt og eru tilbúin að halda uppi fjörinu á kvöldvökum í góðra vina hópi á fjöllum. Bent Marinósson hafði veg og vanda að námskeiðunum og kennslunni.

Námskeiðið hentar sérstaklega vel fullorðnum byrjendum sem hafa lengi langað að læra á gítar, sem og þeim sem hafa prófað áður en vilja byrja aftur eftir langt hlé. Þú þarft ekki að kunna að lesa nótur – við byrjum saman alveg frá grunni.

Námskeiðið er haldið í samstarfi við Ferðafélag Íslands. Síðustu byrjendanámskeið hafa notið mikilla vinsælda og selst upp, svo við mælum með að tryggja sér sæti tímanlega.

 

GÍTARINN FRÁ GRUNNI - 4JA VIKNA NÁMSKEIÐ

HVAR OG HVENÆR?

Kennsla fer fram hjá Ferðafélagi Íslands, Mörkinni 6, 108 Reykjavík.

  • Þriðjudagur 6. október kl. 18:30–20:30
  • Þriðjudagur 13. október kl. 18:30–20:30
  • Þriðjudagur 20. október kl. 18:30–20:30
  • Þriðjudagur 27. október kl. 18:30–20:30

Almennt verð er kr. 29.900 en kr. 25.900 fyrir félaga í Ferðafélagi Íslands.

Ath! til að tryggja þér FÍ meðlimaafsláttinn notar þú afsláttarkóðann „fifelagi“ í netversluninni (án gæsalappa).

Stéttarfélagsstyrkur: Mörg stéttarfélög veita styrki vegna námskeiða. Athugaðu rétt þinn hjá þínu stéttarfélagi.

Skráning

Hvað lærir þú?

  • Hljómar: Við byrjum á algengustu gítarhljómunum og bætum síðan smám saman við. Að námskeiði loknu hefur þú kynnst yfir 30 hljómum sem gera þér kleift að spila fjöldann allan af lögum.
  • Lög: Strax frá byrjun notum við hljómana og ásláttinn til að spila lög. Þannig lærir þú ekki bara grip og æfingar heldur hvernig þú notar þau til að spila raunverulega tónlist.
  • Tækni & líkamsstaða: Við förum yfir góða handstöðu og líkamsbeitingu svo þú getir spilað áreynslulaust og byggt upp góða tækni frá byrjun.
  • Ásláttur & taktur: Við lærum mismunandi takttegundir og áslátt sem nýtist í poppi, rokki, blús og fleiri tónlistarstílum. Við notum bæði gítarnögl og fingur.
  • Hlustun & skilningur: Þú lærir að hlusta á tónlist með nýjum hætti og þekkja uppbyggingu laga („formið“).
  • Capo: Við lærum að nota capo og hvernig það getur auðveldað okkur að spila lög í mismunandi tóntegundum.

Hvernig fer kennslan fram?

Við hittumst einu sinni í viku í 2 klst. í senn. Tímarnir skiptast í kennslu og verklegar æfingar.

  • Kennslan: Kennari fer skref fyrir skref yfir nýtt efni.
  • Æfingar: Við spilum saman sem hópur, æfum lög og vinnum með það sem kennt hefur verið. Kennari gengur jafnframt á milli og leiðbeinir hverjum og einum.
  • Heimaæfingar: Eftir hvern tíma færðu aðgang að lokuðu vefsvæði með kennsluefni, æfingum og hljóðdæmum svo þú getir haldið áfram að æfa þig heima.

Af hverju að velja þetta námskeið?

  • Reyndur kennari: Bent Marinósson hefur yfir 20 ára reynslu af gítarkennslu, þar á meðal mikla reynslu af því að kenna fullorðnum byrjendum.
  • Stuðningur milli tíma: Þú færð aðgang að lokuðu vefsvæði með kennsluefni, æfingum og hljóðdæmum svo þú getir rifjað upp efnið og æft þig heima á milli tíma.
  • Engin pressa: Við erum öll þarna til að læra. Það er pláss fyrir feilnótur, spurningar og hlátur!
  • Spilum saman: Stór hluti námskeiðsins snýst um að nota það sem við lærum til að spila raunveruleg lög saman sem hópur.

Hvað segja fyrri þátttakendur?

„Mér fannst þetta námskeið svo gefandi… Svo gaman að geta spilað saman sem hópur. Ég sé ekki hvernig þetta námskeið gæti orðið betra, það hentaði mér fullkomlega.“

„Hentaði fullkomlega fyrir mitt getu(leysis) stig í gítarleik. Engir fordómar fyrir fölskum tónum heldur allir á svipuðum forsendum. Þolinmæði og áhugi kennara var aðdáunarverður.“

„Hef spilað á gítarinn nær alla daga síðan ég fór í fyrsta tímann og hef mikla ánægju af.“