Gönguhópar FÍ - haust 2025

Ferðafélag Íslands býður upp á fjölbreytta dagskrá í fjölmörgum gönguhópum og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Ferðafélag Íslands býður upp á fjölbreytta dagskrá í fjölmörgum gönguhópum og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Ferðafélag Íslands býður fjölbreytta gönguhópa og ævintýri í náttúrunni

Ferðafélag Íslands býður upp á fjölmarga gönguhópa sem leggja áherslu á reglulegar fjallgöngur, heilsubót og einstakan félagsskap. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja njóta náttúrunnar í góðum hópi, efla líkamlega og andlega vellíðan og kynnast nýju fólki.

 

Gönguhópar 2025

 

Gönguhópar með áherslu á náttúruupplifun og öryggi
Markmið gönguhópanna er að bjóða upp á fjölbreytta útivist og náttúruupplifun þar sem gleði og góður félagsskapur eru í fyrirrúmi. Auk þess er lögð sérstök áhersla á fræðslu um náttúru landsins og öryggi á fjöllum, sem er eitt af lykilatriðum í ferðum Ferðafélagsins.

  • FÍ Alla leið – undirbúningur fyrir krefjandi jöklagöngur með stígandi þjálfun, fræðslu og leiðsögn. Fyrir göngufólk sem sækist eftir áskorunum, þjálfun og kennslu í fjallamennsku. Kynningarfundur fyrir haustverkefnið 2025 verður haldinn eftir miðjan ágúst. 

  • FÍ Þrautseigur – fyrir þá sem vilja ganga reglulega 2x í mánuði. Dagskráin samanstendur af léttum til erfiðum göngum úr FÍ Léttfeta og Fótfráum, alls 20 dagsferðum og tveimur helgarferðum. Ársverkefni, fullbókað. 

  • FÍ Léttfeti – léttar til miðlungs erfiðar göngur allt árið. Farið er í 10 dagsferðir og eina helgarferð. Göngurnar henta fólki í þokkalegu gönguformi. Ársverkefni, fullbókað. 

  • FÍ Fótfrár – miðlungs og erfiðar göngur, 10 dagsferðir og ein helgarferð. Hentar fólki í góðu gönguformi sem sækist eftir meiri áskorunum. Ársverkefni, fullbókað. 

  • FÍ Kvennakraftur – hópur fyrir konur sem vilja ganga í skemmtilegum félagsskap. Léttar göngur á höfuðborgarsvæðinu, helgarferðir og heilsurækt í bland við náttúruupplifun. Kynningarfundur fyrir haustið  framundan í ágúst. 

  • FÍ Tifað á tinda – rólegar og auðveldar göngur fyrir byrjendur eða þá sem vilja byrja aftur eftir hlé. Göngur eru 3–5 klst. og lögð áhersla á hæggöngu og hópefli.  Dagskrá haustsins kynnt nánar á næstunni. 

  • FÍ Alpahópurinn – fyrir göngufólk með reynslu af fjallamennsku. Krefjandi fjallgöngur, fræðsla og tækniþjálfun með áherslu á öryggi í krefjandi aðstæðum, ársverkefni, fullbókað. 

  • FÍ Þjóðleiðir – göngur eftir þjóðleiðum landsins, þar sem saga og náttúra fléttast saman. Gengið er mánaðarlega, með helgarferð að Snæfellsjökli í júní.

  • Nýir og fleiri gönguhópar fyrir haustið 2025 verða kynntir í næstunni á samfélagsmiðlum FÍ. 

 

Gönguhópar 2025