Græna gangan og Hálendishátíðin 23 apríl nk

Græna gangan og Hálendishátíðin 23 apríl nk.
Græna gangan og Hálendishátíðin 23 apríl nk.

Landvernd og fjölmörg náttúruverndarsamtök landsins standa fyrir Grænu göngunni og Hálendishátíðinni þann 23 apríl nk. Ferðafélag Íslands tekur þátt og hvetur félagsfólk og alla náttúruunnendur til að fjölmenna til stuðnings íslenskrar náttúru.  

Græna gangan byrjar við Arnarhól kl. 13:30, 23. Apríl - þar verður gengið til stuðnings íslenskrar náttúru.  

Hálendishátíðin í Iðnó er geggjaður tónlistarviðburður sem er haldinn samdægurs um kvöldið. Frábærir listamenn stíga á stokk; Gugusar, Daði Freyr, Kusk og óviti, Lúpína og Biggi Veira - þetta verður sannkölluð vorhátíð!

Húsið opnar 19:30 - almennt miðaverð er 5900 kr. Landvernd býður  fyrirtækjum og vinnustöðum að styðja við viðburðinn með styrkjum eða magnkaupum á miðum - ef keyptir eru 10 miðar eða fleiri fæst 15% afsláttur.  Sjá nánar á landvernd.is