Leiðin yfir Fimmvörðuháls

 

Núna þegar komið er haust er best að fylgja þeirri leið sem er betur merkt. Það er bláa leiðin, sem fylgir veginum milli Baldvinsskála og brúarinnar yfir Skógá. Norðan við brúna liggur sú leið austar en rauða leiðin, en þær koma saman aftur nálægt Magna og Móða.

 

Bláa leiðin er heldur styttri, en fyrst og fremst er hún betur stikuð og stikurnar eru númeraðar með litlum plötum. Númerin eru hnitsett þannig að ef óskað er eftir aðstoð vita viðbragðsaðilar upp á punkt og prik hvar viðkomandi er staddur.

 

Krókurinn fram hjá hættusvæðinu

Krókurinn sem þarf að taka fram hjá skaðasvæðinu er eftirfarandi:

Þeir sem koma frá Baldvinsskála ganga hefðbundna gönguleið áleiðis upp þar til þeir sjá stikaða leið til vinstri. Sú leið liggur áfram upp að Fimmvörðuskála, uppi á brúninni. Þangað á að fara. Þaðan er slóðanum fylgt sem liggur til austurs og aftur inn á gönguleiðina.

Þeir sem koma úr Þórsmörk fylgja bláu leiðinni þar til þeir hafa Fimmvörðuskála á hægri hönd. Þá er gengið eftir slóðanum að skálanum og síðan stikuðu leiðina niður brekkuna og að Baldvinsskála.

Með þessu móti er hægt að krækja fram hjá því svæði sem er hættulegt.

 

Við ráðleggjum fólki að kynna sér aðstæður vel áður en lagt er af stað í göngu og minnum á að góður undirbúningur og réttur útbúnaður skiptir höfuðmáli við krefjandi aðstæður.