Síðustu helgina í september var farin lokunarferð í Þjófadali. Þar var skálinn þrifinn og gengið frá honum fyrir veturinn og handriðið hjá brúnni við Hlaup lagt niður fyrir veturinn.
Bragi Hannibalsson hefur verið fóstri skálans í Þjófadölum um langt skeið og séð um skálann af miklum dugnaði. Bragi hefur í gegnum árin unnið mikið og gott starf fyrir Ferðafélag Íslands, bæði sem fararstjóri og sjálfboðaliði, og lagt sitt af mörkum við viðhald og uppbyggingu skála og gönguleiða. Árið 2017 hlaut hann Gullmerki Ferðafélags Íslands fyrir störf sín í þágu félagsins.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í ferðinni af Herði og Braga.


