Opin bók um eldvirkni - eldstöðvarganga með HÍ og FÍ í Búrfellsgjá

- eldstöðvarganga með HÍ og FÍ í Búrfellsgjá

Búrfellsgjá er eins og opin bók um eldvirkni á Reykjanesskaga. Þar má sjá með berum augum ummerki þeirra miklu krafta sem hafa mótað landið og eru enn að verki undir fótum okkar.

„Búrfellsgjá er gamall farvegur hraunrennslis sem hefur tæmst í lok eldgoss. Slíkt kallast hrauntröð,“ segir Halldór Geirsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, sem leiðir fræðslugöngu Háskóla Íslands og Ferðafélags barnanna um Búrfellsgjá á sunnudaginn kemur, þann 11. október. Ferðafélag barnanna er angi innan Ferðafélags Íslands sem fagnar hundrað ára afmæli á næsta ári.

Ferðafélag barnanna hefur það skemmtilega hlutverk að kenna yngstu kynslóðinni að landið er ekki bara eitthvað sem blasir við okkur út um bílrúðuna – það er hægt að ganga um það, snerta það og læra að lesa það, t.d. með vísindafólki HÍ en líka með fararstjórunum. Þá er forvitnin langbesta nestið.

Gangan á sunnduag hefst kl. 12 á bílastæðinu við Búrfellsgjá í Heiðmörk og stendur til kl. 14. Þátttaka er ókeypis og ekki þarf að skrá sig, það er nóg að mæta. Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri, vera í góðum skóm og taka með sér nesti.

Nánar um ferð

 

Hraunið rann til sjávar

Búrfell gaus fyrir um 8.000 árum og þótt ummerkin séu nú gróin og umhverfið friðsælt var gosið langt frá því að vera smátt í sniðum. Hraun frá því rann líklega til sjávar á þremur stöðum og Búrfellshraunin má nú finna víða í Hafnarfirði og Garðabæ.

„Hægt er að sjá margra metra djúpan farveg hrauntraðarinnar og ímynda sér hvernig hraunið hefur runnið þar frá myndarlegum gígnum til byggða,“ segir Halldór. „Einnig sjást vel misgengi sem hafa skorið hraunið þannig að stór hluti farvegarins hefur sigið.“

Halldór segir að Búrfell sé eldborg sem tilheyri Krýsuvíkurkerfinu, einu af um sex eldstöðvakerfum Reykjanesskagans. Sprungusveimar kerfanna teygi sig tugi kílómetra frá helstu gosstöðvum og Búrfell marki, að hans sögn, nyrsta gosvirka hluta Krýsuvíkurkerfisins á nútíma.

 

Landið hreyfist enn

Sögunni, sem lesa má úr Búrfellsgjá, lauk ekki þegar gosið var yfirstaðið fyrir um 8.000 árum. Nákvæmar hæðarmælingar hafa verið gerðar við gjána allt frá árinu 1966 og sýna þær að misgengin þar eru enn á hreyfingu.

„Á síðustu árum hafa komið í ljós auknar hreyfingar á sprungum sem þvera Búrfellsgjá,“ segir Halldór. Hann bendir á að sigdalir séu vel þekktir hér á landi, meðal annars á Þingvöllum og við Grindavík, en óljóst hafi verið hvort þeir dýpki eingöngu við meiriháttar gliðnunaratburði eða jafnt og þétt yfir lengri tíma.

Mælingarnar við Búrfellsgjá varpa ljósi á þetta, segir Halldór. Þar hefur sigið numið allt að fimm sentímetrum frá því mælingar hófust og hreyfingarnar jukust enn samhliða umbrotunum utar á Reykjanesskaga.

„Slíkar athuganir segja okkur að sigdalir dýpki bæði jafnt og þétt, sem og í umbrotahrinum,“ segir Halldór.

Þegar gengið er um Búrfellsgjá er því ekki aðeins verið að skoða minjar um löngu kulnað eldgos. Landið heldur áfram að hreyfast og breytast. Halldór segir eitt það merkilegasta við gjána einmitt hversu greinileg misgengin séu þegar fólk veit að hverju það á að leita. Halldór mun einmitt hjálpa fólki við þá skemmtilegu leit.

„Mér finnst merkilegt hversu greinileg misgengin eru sem skera Búrfellsgjá þegar maður veit hvernig á að lesa landslagið. Mér finnst einnig merkilegt að skoða ummerki þessa hraunflæðis sem hefur komið upp býsna nærri mörkum höfuðborgarsvæðisins.“

 

Lífið nemur landið

Nú þegar haustið er gengið í garð tekur gjáin á sig annan svip sem mun blasa við göngufólki á sunnudag.

Mosi, lyng, víðir, birki, grös og annar lággróður hefur haft nokkur þúsund ár til að hreiðra um sig í hrauninu og milda ásjónu þess. Haustið er nú mætt með sinn fjölskrúðuga litakassa og hikar ekki við að mála yfir allt með gulu, rauðu og brúnu, en græni mosinn heldur sínum lit og svarta hraunið líka þar sem það blasir við. Þessir nýju litir draga enn betur fram sprungur, brúnir og línur sem sumarið felur mjög vel með laufi og blómum. Við getum sagt að eldurinn hafi í raun strengt strigann og mótað rammann en tíminn síðan málað á hann í þúsundir ára.

Gróðurinn er um leið hluti af sögunni sem hægt er að lesa á göngunni. Þar sem eitt sinn var nýrunnið, svart og steindautt hraun hafa plöntur smám saman skotið rótum, fyrst við erfiðar aðstæður en síðan myndað sífellt fjölbreyttara gróðursamfélag. Í skjólsælum lægðum og sprungum hafa víðir og birki fundið sér stað en mosi og lyng klæða stóran hluta hraunsins.

Þarna mætast því tvær sögur landsins með býsna áþreifanlegum hætti: sagan um hvernig land verður til í eldi og umbrotum og sagan um hvernig lífið nemur það síðan, græðir og breytir ásýnd þess. Haustið gerir þessar tvær sögur kannski sýnilegri en nokkur annar árstími.

 

Í kviku viðburðanna

Fararstjórinn okkar í Búrfellsgjá, Halldór Geirsson, lauk BS-prófi í jarðeðlisfræði frá Háskóla Íslands árið 1999 og MS-prófi í sömu grein árið 2002. Hann lauk doktorsprófi í jarðvísindum frá Pennsylvania State University árið 2014. Hann starfaði um árabil sem sérfræðingur á Veðurstofu Íslands áður en hann tók við akademísku starfi hjá HÍ.

Rannsóknir hans beinast meðal annars að jarðskorpuhreyfingum, kvikukerfum eldstöðva og þeim kröftum sem móta Ísland á flekaskilum Norður-Ameríkuflekans og Evrasíuflekans. Á síðustu árum hefur tækninni í jarðvísindum fleygt mjög fram og fjarkönnun úr gervitunglum og

sífellt nákvæmari rafrænar mælingar hafa aukið til muna möguleika vísindafólks til að skynja og túlka hreyfingar jarðar sem við finnum ekki fyrir sjálf. Þar er óhætt að segja að Halldór sé í íslenska landsliðinu.

Hann hefur nefnilega um árabil nýtt nákvæmar GNSS-landmælingar og gervitunglagögn til að mæla hvernig yfirborð landsins hreyfist og aflagast og þannig aflað upplýsinga um ferli sem enginn sér en eiga sér stað djúpt undir yfirborðinu, meðal annars kvikusöfnun og kvikuflutninga.

Reykjanesskaginn hefur verið áberandi í rannsóknum Halldórs undanfarin ár. Hann hefur komið að rannsóknum á umbrotunum sem hófust á Reykjanesi árið 2019, eldgosunum við Fagradalsfjall og Grindavík og þeirri kvikuvirkni og þeim jarðskorpuhreyfingum sem síðan hafa einkennt svæðið.

Ferðin í Búrfellsgjá er því frábært tækifæri til að fá mann sem hefur verið nánast í kviku viðburðanna á Reykjanesi undanfarin ár til að segja frá því hvernig Ísland hefur mótast – og hvernig landið er enn að mótast fyrir augunum á okkur.

Ferðin á sunnudag er hluti af viðburðaröðinni Með fróðleik í fararnesti, langlífu samstarfs- og verðlaunaverkefni Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands þar sem vísindafólk HÍ og reynslumiklir fararstjórar Ferðafélagsins leiða fjölskyldur saman út í náttúruna og miðla fróðleik um það sem fyrir augu ber. Ekki missa af þessu. Í Búrfellsgjá hefur jörðin þegar sagt söguna, að minnsta kosti að hluta. Halldór Geirsson, prófessor við HÍ, hjálpar okkur að lesa hana.