Viðvörun vegna hættulegra aðstæðna á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls
Ferðafélag Íslands, Útivist og Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli vilja vekja athygli ferðafólks á hættulegum aðstæðum sem nú hafa skapast á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls.
Undanfarin ár hefur jökullinn hopað og í kjölfarið hafa gil og sprungur opnast. Á hluta leiðarinnar milli Baldvinsskála og Fimmvörðuhálsskála hafa einnig myndast brattar brekkur og skriður þar sem áður var snjór eða jökulís.
Eftir mikla rigningu síðustu daga hefur snjó tekið upp og leiðin er nú ófær yfir gil og vatnssvelgi.
FÍ, Útivist og Dagrenning vara fólk eindregið við því að leggja af stað í göngu yfir Fimmvörðuháls við þessar aðstæður.
Ráðleggjum fólki að ganga ekki Fimmvörðuháls að svo stöddu.
Sameiginlegt verkefni þeirra sem koma að gönguleiðinni er að finna nýja og öruggari leið á þeim hluta hennar þar sem hættulegar aðstæður hafa skapast vegna hopunar jökulsins.
Við hvetjum ferðafólk ávallt til að sýna aðgát, kynna sér aðstæður vel og hafa öryggi í fyrirrúmi þegar ferðast er um krefjandi landsvæði í íslenskri náttúru.
-------------------------- ENGLISH
Warning: Dangerous Conditions on the Fimmvörðuháls Hiking Trail
Ferðafélag Íslands (the Iceland Touring Association), Útivist, and the Dagrenning Search and Rescue Team in Hvolsvöllur would like to alert hikers and travellers to dangerous conditions that have developed on the Fimmvörðuháls hiking trail.
In recent years, the glacier has been retreating, resulting in the opening of new ravines and crevasses. Steep slopes and scree have also formed along parts of the trail between Baldvinsskáli and Fimmvörðuhálsskáli, where there was previously snow or glacial ice.
Following heavy rainfall in recent days, the snow has melted, and the trail is now impassable in places due to ravines and water channels.
FÍ, Útivist and Dagrenning strongly advise against setting out on a hike across Fimmvörðuháls under the current conditions.
We advise people not to hike Fimmvörðuháls at this time.
Relevant parties are working together to identify a new and safer route along the section where dangerous conditions have developed as a result of the glacier's retreat.
We always encourage travellers to exercise caution, familiarise themselves thoroughly with current conditions, and prioritise safety when travelling through challenging terrain in Icelandic nature