Viltu skoða skordýr í algjöru návígi og sjá hvað leynist í laufinu, í lækjunum, ánni og grasinu í Elliðaárdal? Þá ættirðu sannarlega að mæta í hina árlegu pödduskoðun Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands við gömlu rafstöðina í Elliðaárdal þriðjudaginn 9. júní kl. 18.
Viðburðurinn er hluti af hinni feykilega vinsælu vísindaröð Með fróðleik í fararnesti, samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Ferðafélags barnanna sem hefur verið fastur liður í útivist fjölskyldna á höfuðborgarsvæðinu um árabil. Ferðafélag barnanna er angi innan Ferðafélags Íslands og verkefnið sjálft, Með fróðleik í fararnesti fékk verðlaun Rannís sem besta vísindamiðlunarverkefni landsins árið 2023.
Pödduskoðunin hefur fyrir löngu öðlast ákveðna sess hjá krökkum sem mæta ár eftir ár með risastór stækkunargler, krukkur og forvitnina á mjög háu stigi. Enda sameinast í þessari göngu vísindi, náttúra og íslenskt sumar í þeirri göfugu iðju að stara á mjög litlar lífverur af ótrúlega miklum áhuga.
Í ferðinni verður hægt að skoða pöddur í smásjám, fræðast um lífið í vatninu og grasinu. Það verður líka hægt að hitta vísindafólk úr HÍ og nema í líffræði sem hjálpa göngufólki við að greina tegundir auk þess að svara öllum mögulegum spurningum.
Þeir Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði við Háskóla Íslands og einn helsti sérfræðingur landsins í lífríki ferskvatns og pöddum, og Ólafur Patrick Ólafsson, kennari í líffræði við Háskóla Íslands, leiða gönguna ásamt öflugum hópi nema í líffræði við HÍ. Með þeim ferða líka fararstjórar frá Ferðafélagi barnanna.
Ferð: Pöddulíf í Elliðaárdal 9. júní
Árlega er mikil spenna í loftinu hvort nýir landnemar finnist í Elliðaárdalnum en Gísli Már vill meina að einn daginn finnist moskító fluga á svæðinu. Á síðustu áratugum hafa hundruð nýrra skordýrategunda bæst við íslenska fánu að hans sögn samhliða hlýnandi loftslagi og auknum flutningum milli landa.
„Tegundir sem áður gátu ekki lifað hér eiga nú mun auðveldara með að nema land,“ segir Gísli Már og nefnir meðal annars geitunga, humlur, nýjar bjöllutegundir og hið alræmda lúsmý.

Það kviknar eitthvað risastórt þegar barn áttar sig á því að jafnvel minnsta lífveran í grasinu geymir heila undraveröld – sem opnast þegar skordýr er skoðað í smásjá.
„Menn og skordýr eiga sameiginlegan forföður í fyrndinni eða fyrir um 550 milljónum ára svo skyldleikinn er nú frekar lítill,“ segir Gísli Már og hlær. Hann segir þó skordýr vera meðal áhugaverðustu dýra jarðar.
„Í skjótu bragði get ég nefnt líkamsbyggingu þeirra, þróun flugs, hæfni þeirra til að lifa á þurrlendi og þann ótrúlega fjölbreytileika sem gerir þau hæf til að lifa nánast alls staðar.“
Stórmerkilegar uppgötvanir í vísindum byrja oft á því þegar barn hrópar upp fyrir sig: „Ooooooj“… en svo vill það skoða pödduna mikið betur.
Gísli Már segir mörg skordýr séu alls ekki ljót þótt mörgum hrylli við þeim. Hann segir að þau séu meira að segja afar falleg ef fólk gefi sér tíma til að skoða þau vel og það gefst heldur betur tækifæri til þess í göngunni þann 9. júní. „Áður fyrr safnaði fólk skrautlegum skordýrum og setti í ramma til sýnis. Þegar maður skoðar þau í smásjá opnast eiginlega alveg nýr heimur.“
Þótt mörgum finnist skordýr fyrst og fremst hvimleið minna vísindamennirnir á að án þeirra væri lífið á jörðinni eins og við þekkjum það einfaldlega ekki til. „Skordýr eru gríðarlega mikilvæg í náttúrunni. Þau sjá meðal annars um frjóvgun plantna, brjóta niður lífrænan úrgang og eru lykilþáttur í vistkerfum heimsins,“ segir Gísli Már.

Samstarf Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands hófst árið 2011 á aldarafmæli HÍ og hefur haldið áfram allar götur síðan vegna mikilla vinsælda. Undanfarin ár hefur áherslan einkum verið á göngur fyrir krakka og fjölskyldur þar sem náttúran, vísindin og forvitnin fá að njóta sín saman. Í fjöruferð í þessari vinsælu fróðleiksröð í lok apríl mættu til dæmis hátt í fimm hundruð manns — og á óvenju skömmum tíma voru bæði börn og fullorðnir komin með nefið ofan í pollana.
„Það er mjög ánægjulegt að Ferðafélagið skuli vinna með Háskóla Íslands og sinna börnum sérstaklega og að þau læri að njóta landsins í kyrrð og ró,“ segir Salvör Nordal, umboðsmaður barna, um þetta gjöfula samstarf Háskólans og Ferðafélagsins en hún er jafnfram í stjórn Ferðafélags Íslands. Hún er líka prófessor við Háskóla Íslands.
„Að flétta saman sjálfbærnifræðslu og göngum er ein besta leiðin til að svala áhuga á umhverfisvernd og skilja mikilvægi þess að ganga vel um landið og ferðast fótgangandi,“ segir Salvör.
Göngufólk eru hvatt til að taka með sér stækkunargler ef þeir eiga slíkt – og ekki er verra að mæta í vaðstígvélum ef ætlunin er að skoða lífið í lækjum og pollum af alvöru. Mjög brýnt er að fara varlega ef vaðið er í ánni neðan við rafstöðina.
Það þarf ekki að skrá sig í þessa ferð. Það er bara að mæta með forvitnina í farteskinu. Þátttaka er alveg ókeypis og bílastæði eru allt í kring.