Morgungöngur FÍ alla næstu viku
28.04.2010
Hann Tumi fer á fætur, við fyrsta hanagal,” segir í kvæði sem öll börn á Íslandi kunnu áður en sjónvarpið náði almennri útbreiðslu og er sungið við lag eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Ferðafélag Íslands hefur í nokkur ár vaknað við fyrsta hanagal í eina viku á hverju vori og staðið fyrir svokölluðum morgungöngum sem standa yfir alla næstu viku 3. - 7. maí.
Ákveðið hefur verið að þema morgungangnanna í ár verði ljóðalestur og verður lesið úr Skólaljóðunum eða öðrum ljóðbókmenntum á hverjum fjallstindi.
Það eru hjónin Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir sem sjá um morgungöngurnar eins og undanfarin ár.




