Heiðríkja á Hvannadalshnúk
09.05.2010
Ferðafélag Íslands efndi á laugardag til göngu á Hvannadalshnúk fyrir þátttakendur í verkefninu 52 fjöll sem staðið hefur frá áramótum. Alls gengu 109 á fjallið í heiðríku veðri og veðurblíðu svo elstu menn muna varla annað eins. Á toppnum blasti við blár himinn til allra átta og mátti þekkja nafntoguð fjöll í flestum landshlutum.
Logn og sólskin hélst allan daginn og voru þátttakendur í sjöunda himni í bókstaflegri merkingu og skein gleðin af hverju andliti. Það var Haraldur Ólafsson sem stýrði verkefninu eins og jafnan er í ferðum FÍ á þennan hæsta tind Íslands. Sjá myndir.




