Gengið á góða spá- skíðaganga á sunnudaginn
19.01.2012
Sunnudaginn 22. janúar n.k. efnir Ferðafélag Íslands til skíðagönguferðar í Marardal undir slagorðinu: Gengið á góða spá. Gangan hefst við Hellisheiðarvirkjun og verður haldið norður með Húsmúla í Engidal og þaðan áleiðis í Marardal. Engidalur og Marardalur eru í hlíðum Hengilsins. Hér fyrir neðan er kort sem sýnir upphafsstað göngu og leiðina þangað.




